Fara í efni

Bláberja, blóðbergs frostpinnar

Þú notar frosin bláber í þessa uppskrift.
Bragðgóðir og svalandi
Bragðgóðir og svalandi

Þú notar frosin bláber í þessa uppskrift.

Hráefni:

2 ½ bolli af frosnum bláberjum

½ bolli af mjólk sem búið er að gera sæta – nota má Steviu eða hunang

2 msk hrásykur

4 msk af blóðbergi / timian, saxað niður – verða um 2 msk saxað.

Salt

2 msk ferskur sítrónusafi

Leiðbeiningar:

Það þarf að eiga 4 til 6 stk form fyrir frostpinna.

Taktu berin út úr frysti og láttu þau þiðna.

Taktu mjólkina, ¼ bolla af vatni, sykurinn, blóðbergið/timian og örlítið salt og settu í lítinn pott.

Láttu malla á meðalhita í 5 mínútur og hrærðu öðru hvoru.

Láttu blönduna svo kólna í 30 mínútur.

Settu núna 2 bolla af bláberjum og sítrónusafann í blandarann. Helltu kældu blöndunni varlega saman við og það er gott að nota sigti,  látið hrærast. Settu restina af bláberjunum saman við og látið blandast afar vel.

Helltu blöndunni í frostpinna form. Gott er að gera þetta að kvöldi til því þá eru þeir frosnir í gegn næsta morgun. best er að nota könnu með stút svo þetta fari nú ekki út um allt. 

Njótið~