Fara í efni

Rauðrófuhummus

Já þú last rétt.
Rauðrófur eru ótrúlega hollur matur.
Rauðrófur eru ótrúlega hollur matur.

Innihald: 1 rauðrófa meðalstór / 1 msk sjávarsalt  / 2 msk ólífuolía eða meira ef þarf / 1 rifið hvítlauksrif / 1 msk cummin / 2 msk sítrónusafi / 2 msk tahini / 2 mskvatn.



 

 


Aðferð:

  1. Stillið ofninn á 200gr.
  2. Afhýðið og skerið rauðrófuna í bita og setjið í eldfast mót.
  3. Hellið ólífuolíu yfir, saltið og bakið í ca. 30 mín.
  4. Þegar þær eru bakaðar eru rauðrófurnar og olían af þeim sett í matvinnsluvél ásamt öllu hinu og maukað.

Rauðrófur eru ótrúlega hollur matur, rosalega járnríkar og af því ég er frekar blóðlítil og þarf að passa upp á járnmagnið var mér ráðlagt að borða og djúsa rauðrófur. Mér fannst það ekki spennandi en lét mig hafa það að djúsa þær. Svo komst upp á lagið með að gera þetta ótrúlega góða rauðrófumauk sem er algjör snilld.

Hugmyndin af því kemur úr Happ, happ, húrra bókinni en þar er notað hunang til að sæta áður en rauðrófurnar eru settar inn í ofninn sem er óóótrúlega gott. En þetta er alls ekki verra og minni sykur :O)

Ég nota það mest sem álegg, með gulrótum og gúrkum og það er geggjað með heimagerðum pizzum.

Uppskrift og myndir: Valdís Sigurgeirsdóttir, www.ljomandi.is
Ef þú vilt hafa samband við mig er netfangið mitt: valdis@ljomandi.is