Fara í efni

Karamellu epla smoothie

Epli og karamella eiga einstaklega vel saman.
Karamellu epla smoothie

Epli og karamella eiga einstaklega vel saman.

Þessi drykkur er stútfullur af trefjum og öðrum nauðsynlegum næringarefnum.

Hráefni:

¾ bolli af kókósmjólk

1 epli – helst frosið og búið að hreinsa og afhýða

¼ bolli af rifinni kókóshnetu

2 stórar döðlur án steina

2 msk af möndlusmjöri

½ - 1 bolli af ísmolum

1 msk af chia fræjum

Leiðbeiningar:

Gefðu þér tíma í að græja epli kvöldið áður en þú ætlar að gera þennan drykk. Hreinsaðu það og skerðu í bita án hýðis og frystu.

Með þessu þá verður drykkurinn þykkari.

Svo þegar drykkur er búinn til þá skal setja allt hráefnið í blandara, setja á mesta hraða og blanda þar til drykkur er mjúkur.

Njótið vel!