Fara í efni

Öðruvísi Pesto

Þetta pesto er einfalt og afar bragðgott. Það má nota á marga mismunandi vegu, með pasta, á samlokur eða jafnvel sem ídýfu.
Öðruvísi pestó
Öðruvísi pestó

Þetta pesto er einfalt og afar bragðgott. Það má nota á marga mismunandi vegu, með pasta, á samlokur eða jafnvel sem ídýfu.

Hráefni:

2 bollar af myntu

1-2 hvítlauksgeirar

½ bolli af góðum Cheddar osti

1 – 2 msk af sítrónusafa

2 msk af ólífu olíu

Sjávar salt og ferskur pipar

Leiðbeiningar:

Settu allt hráefnið nema olíuna í blandara og láttu blandast vel.

Þegar allt hefur hrærst vel saman, helltu þá olíunni hægt saman við og láttu hrærast betur.

Þú getur stjórnað því hversu þykkt pestóið er með því að bæta við olíu eða nota minna af henni.

Svona einfalt er það nú. Best er að borða þetta ferskt en það geymist í ísskáp í 4 til 5 daga. Það má einnig frysta þetta.

Njótið~