Fara í efni

Klettasalat pestó

þetta pestó er farið að festa sig í sessi
Klettasalat pestó

Klettasalat pestó

Þetta verður ca. 5 dl af sósu.

3 dl klettasalat (ca.100 g) v

1 dl steinselja , ½ búnt

2/3  dl furuhnetur / cashew hnetur (léttristaðar á þurri pönnu)

¾ dl Parmesan (rifinn)

4 stk hvítlauksgeirar

1 msk sítrónusafi

2 ½ dl Ólívuolía eða Isíó-4 olía

 

Aðferð:

Öllu blandað saman í matvinnslukönnu og maukað vel saman, smakkað til með salti og pipar

Sett í ílát með loki, geymist í kæli í lágmark tvær vikur.