Fara í efni

Ofurhollur bláberjaís

Bananar eru frábærir! Ef þú átt vel þroskaða banana í ávaxtaskálinni sem enginn hefur lyst á þá er málið að fjarlægja hýðið af þeim, skera þá niður í sneiðar og pakka hverjum og einum í nestispoka og skella þeim beint í frystinn. Þannig áttu alltaf til frosin banana til að skella út í ískaldan smoothie eða ef þig langar skyndilega í heimagerðan og bráðhollan ís.
Bláberjaís
Bláberjaís

Bláberjaís

Innihald:
3 litlir frosnir bananar
1 bolli frosin bláber

Aðferð:
Allt sett í matvinnsluvél og blandað þar til rétt áferð er komin.

Njótið!

Heilsukveðja,
Ásthildur Björns