Fara í efni

Smá innsýn í hinn fáránlega heim megrunarkúra

Allar konur hafa einhvern tímann á lífsleiðinni farið í megrun. Prufað allskyns kúra og ég veit ekki hvað. Ég man eftir einu þegar ég var lítil stelpa fyrir norðan og mamma var að borða einhverjar megrunar karamellur. Já, þetta er ótrúlegt allt saman.
Smá innsýn í hinn fáránlega heim megrunarkúra

Allar konur hafa einhvern tímann á lífsleiðinni farið í megrun. Prufað allskyns kúra og ég veit ekki hvað. Ég man eftir einu þegar ég var lítil stelpa fyrir norðan og mamma var að borða einhverjar megrunar karamellur. Já, þetta er ótrúlegt allt saman.

Það eru bara ekki til neinar skyndilausnir því þessir kúrar virka ekki til langs tíma.

Hérna er smá samantekt af megrunarkúrum sem eru svo út í hött að það ætti enginn að reyna þetta.

Hvítkál, hvítkál og já, meira hvítkál

Hvítkálssúpu kúrinn er akkúrat það: hvítkálssúpa og ekkert annað í 7 heila daga. Það eina sem þessi kúr gerir fyrir þig er að þú missir vatnsþyngd. Þessi kúr er vinsæll meðal fræga fólksins sem ætlar sér að missa mörg kíló á afar stuttum tíma. Þetta er stórhættulegt og afar óheilbrigt.

Greip ávöxturinn greip alla

Þessi kúr þar sem þú borðar greip ávöxt er afar einfaldur. Það sem þú þarft að gera er að borða greip ávöxt fyrir hverja máltíð og samkvæmt öllu áttu að léttast. Hljómar of gott til að vera satt. Smáaletrið sem fylgir þessum kúr hljómar svona: ekki neyta fleiri en 800 hitaeininga á dag. Vá, takk greip ávöxtur...á að reyna að drepa mann.

Barnamatur...já ég veit, barnamatur í krukkum

Þessi kúr er auðvitað bara fyndinn. Frægar leikkonur í henni Hollywood hafa lofa þennan kúr í hástert. Ef þú vilt léttast hratt og mikið þá skaltu bara borða barnamat úr krukkum. Og 600 hitaeiningar á dag? Þær hljóta að liggja í yfirliði þessar gellur.

Eplaediks kúrinn

Elpaedik er sagt hraða á brennslunni og draga úr matarlyst. Þeir sem fara þessa leið eiga að taka eina til þrjár teskeiðar af edikinu fyrir hverja máltíð eða millimál. Þessu fylgir hætta, eplaedik er hátt í sýru og pirrar á þér hálsinn ef tekið er of oft. 

Red bull kúrinn

Móðir á Nýja Sjálandi var í örvæntingu sinni að reyna að ná af sér meðgönguþyngdinni og bjó til sinn eigin megrunarkúr. Red bull kúrinn. Í átta mánuði borðaði hún næstum ekkert en drakk 10 til 14 dósir af Red bull yfir daginn. Þessi drykkur er afar hár í koffeini. Henni tókst að létta sig ansi mikið en hún fékk hjartaáfall og enn þann dag í dag þjáist hún af miklum krömpum og kvíðaköstum. Ætli þetta hafi verið þess virði?

Ís kúrinn

Ísbúð í Kaliforníu fór að bjóða upp á fjögurra daga ís hreinsun. Já þú last rétt, ekkert nema ís til að hreinsa líkamann. Ok, það er gaman að borða ekkert nema ís alla daga en er það hollt? Nei alls ekki. Þig vantar öll önnur næringarefni og þetta endar bara með ósköpum og magapínu.

Okkur á Heilsutorg.is langaði bara að sýna ykkur lesendum að skyndilausnir eru ekki til. Svona stórhættulegir megrunarkúrar eiga bara ekki rétt á sér. Þú ert að ganga á forða líkamans og gætir, eins og sumir, endað á spítala.

Heilbrigður lífsstíll, hreyfing og rétt mataræði er það sem virkar!