Fara í efni

MAGNESIUM „the miracle mineral“

Magnesium hefur verið kallað “the miracle mineral” og “the spark of life” og það er mjög nauðsynlegt fyrir okkur öll. Það er gott fyrir heilbrigði beina og einnig mjög gott fyrir hjartað. En einhverra hluta vegna er oft litið framhjá þessu efni þegar hugað er að heilsunni.
Magnesíum í töfluformi
Magnesíum í töfluformi

Magnesium hefur verið kallað “the miracle mineral” og “the spark of life” og það er mjög nauðsynlegt fyrir okkur öll.

Það er passar upp á heilbrigði beina og er einnig mjög gott fyrir hjartað.  En einhverra hluta vegna er oft litið framhjá þessu efni þegar hugað er að heilsunni.

 

 

Hvað gerir Magnesíum fyrir okkur?

-         það er gott fyrir æðar og vöðva.

-         Byggir upp og styrkir bein.

-         Gerir hringrás blóðsins auðveldari.

-         Hjálpar okkur að sofa, ná tökum á stressi og hjálpar geðheilsunni t.d með þunglyndi og tilfinningalegan stöðugleika.

-         Nauðsynlegt fyrir þrek/þol hjá íþróttafólki.

Hver eru merki þess að Magnesíum skortur sé í líkamanum hjá þér?

-         þróttleysi í vöðvum, skjálfti eða krampar.

-         Óreglulegur hjartsláttur t.d aukinn hjartsláttur.

-         Veikari bein.

-         Höfuðverkur.

-         Hár blóðþrýstingur.

 Hvað er hægt að gera þegar líkamann skortir Magnesíum?

Best er auðvitað að hafa mataræðið þannig að það innihaldi næginlegt af Magnesíum. En þar sem við erum nú þannig gerð þá borða of margir mat sem er fyrirfram unninn. Þá er voða lítið eftir af þessum nauðsynlegu vítamínum og steinefnum sem líkaminn þarf til að starfa rétt og vera heilbrigður.

Ofeldun á mat og algengar meltingatruflanir koma í veg fyrir að líkaminn nái að vinna Magnesíum eingöngu í gegnum fæðið.

Hérna eru nokkrar uppástungur um hvað þú átt að láta ofaní þig til að fá Magnesíum úr mat.

Best er auðvitað að borða spínat. Einnig eru brokkólí, gúrka, grænar baunirsellerí og allskyns fræ eins og td. Sólblómafræ, sesamfræ og hörfræ rík af magnesíum

Það má líka alltaf taka Magnesíum til inntöku í töfluformi. Auðvitað er frekar mælt með því að ná því inn með mat en það er ekki alltaf næginlegt.

Ég hef tekið Magnesísum í rúmlega tvö ár í töflu formi og einnig í duft formi sem er uppleysanlegt í vatni og ég finn mikinn mun á sjálfri mér andlega og líkamlega. Ég hefði bara hreinlega ekki trúað því að þetta efni væri líkamanum svona mikilvægt ef ég hefði ekki reynt það sjálf.

Mæli með að fólk athugi hvort það sé að fá nóg af Magnesíum úr sínum mat og ef ekki þá eru apótek og Heilsuhúsið með mikið úrval af Magnesíum bæði í töflu- og duft formi til inntöku.

Með Magnesíum er betra að velja dýrari gerðina heldur en að fara og reyna að spara nokkrar krónur. 

Á heilsunni er ekki verðmiði.