Fara í efni

Hefur þú einhvern tíman séð kanínu með gleraugu?

Hefur þú einhvern tíman spáð í hvert leyndarmál Bugs Bunny er? Hann er bráð skarpur og afar aktífur. Svarið er auðvitað Gulrætur!
Gulrætur fyrir alla
Gulrætur fyrir alla

Hefur þú einhvern tíman spáð í hvert leyndarmál Bugs Bunny er? Hann er bráð skarpur og afar aktífur.  Og já svarið er auðvitað Gulrætur!

Eða eins og maðurinn sem borðaði bara gulrætur sagði þegar hann var spurður "afhverju borðar þú ekkert nema gulrætur"? Svar mannsins var afar einfalt " hefur þú einhvern tíman séð kanínu með gleraugu"?

Gulrótin er grænmeti sem að flestum líkar best við. Og á þetta við fólk út um allan heim.

Þú getur notað gulrótina í salatið þitt nú eða bara sem hollt snakk á milli mála. Í gulrótum eru mörg mikilvæg næringarefni sem eru afar góð fyrir augun, húðina, tennur og meltingarveginn.

Orðið Gulrót kemur frá gríska orðinu "karoton".

Efnið beta-carotene er ríkjandi í gulrótum. Þær hafa verið á borðum fólks í þúsundir ára, allt frá mið-Asíu til Austurlanda fjær. Einnig í sumum löndum í Evrópu. Gulrótin kom til Bandaríkjanna á 16.öld.  Kína er stærsti framleiðandi gulróta í heiminum.

Í einni gulrót er gríðarlegt magn af A-vítamíni, beta-carotene, andoxunar efnum og steinefnum.

Töfrar Beta-carotene

Það er þekkt fyrir að vera eitt öflugasta andoxunarefnið sem hjálpar líkamanum að berjast gegn öldrun. Lifrin okkar breytir svo þessu beta-carotene í A-vítamín sem hjálpar sjóninni.

Ef þú vilt vera viss um að halda góðri sjón fram eftir aldri þá skaltu vera dugleg(ur) að borða gulrætur. Þetta mikla magn A-vítamíns sem þær innihalda getur einnig hjálpað þeim sem eiga erfitt með að sjá vel þegar rökkva fer, t.d við akstur og fleira.

Gulrætur geta dregið úr hættunni á að fá ákveðnar tegundir af krabbameini.  Má nefna, brjósta, ristils,  og lungna krabbamein.

Gulrætur og yngra útlit

Gleymdu þessum fegrunar aðgerðum og öllum þessum kremum sem eiga að gera þig unglegri. Borðaðu gulrætur daglega.  Háu hlutföllin af beta-carotene sem vinnur eins og andoxunarefni hægir á þeim skemmdum sem húðin hefur þegar orðið fyrir. Og hægir á öldrum fruma.

Ef þú vilt fá bjarta og glóandi húð notaðu andlits maska búinn til úr gulrótum. Best er að kreista safan úr þeim og blanda saman við hunang og bera á andlitið.

Gulrætur eru einnig afar góðar fyrir hjartað. Í þeim eru efni eins og alpha carotene, beta carotene og lutein og þessi efni saman hjálpa hjartaheilsunni.

Gulrætur eru meira að segja góðar fyrir tannheilsuna.

Tvö glös af gulrótarsafa á dag styrkja ónæmiskerfið um allt að 70% þannig að það ættu allir að bæta þessari töfra gulu-rót við daglega neyslu.

Miklu meira um gæði gulrótarinnar má finna HÉR