Fara í efni

Vikumatseðill – vika 4 frá Heilsumömmu

Jæja, nú reynir á útsjónarsemi og skipulag í þessari viku. Það hefur gengið erfiðlega að vera undir hámarkinu svo núna er síðasti séns að redda málunum ;) Þetta virðist ætla að verða önnur veikindavika og svo er vetrarfrí í skólanum í lok vikunnar. Mér sýnist á ástandinu á mannskapnum að það verði bara spilað, púslað, haft kósý og örugglega bakað eitthvað gott. Hápunktur vikunnar er um helgina þar sem vinnustaðurinn minn heldur Árshátíð út á landi og verður það nú aldeilis stuð fyrir hjónakornin að komast aðeins frá börnum og búi og slaka á og njóta lífsins í sveitasælunni.
Heilsumamman með vikumatseðill
Heilsumamman með vikumatseðill

Jæja, nú reynir á útsjónarsemi og skipulag í þessari viku.  Það hefur gengið erfiðlega að vera undir hámarkinu svo núna er síðasti séns að redda málunum.  Þetta virðist ætla að verða önnur veikindavika og svo er vetrarfrí í skólanum í lok vikunnar.  Mér sýnist á ástandinu á mannskapnum að það verði bara spilað, púslað, haft kósý og örugglega bakað eitthvað gott. Hápunktur vikunnar er um helgina þar sem vinnustaðurinn minn heldur Árshátíð út á landi og verður það nú aldeilis stuð fyrir hjónakornin að komast aðeins frá börnum og búi og slaka á og njóta lífsins í sveitasælunni.

 

 

Mánudagur –   Ljúffeng linsubaunasúpa og spelt bollur.   Einn sá ódýrasti matur sem finnst í heiminum.  Nýbakaðar spelt bollur lyfta svo máltíðinni heilmikið upp.

 

Þriðjudagur –  Spæld egg, ristað brauð og grænmeti.  Einfalt og fljótlegt á þriðjudegi.  Brauðið kaupi ég í Kökulist, Firðinum, svo ótrúlega gott súrdeigs spelt brauð sem er það besta sem ég hef fundið.

Miðvikudagur –  Taco súpa.   Þessi uppskrift er búin að vera lengi á leiðinni á vefinn.  Krakkarnir elska þessa súpu.  Hún er snilld ef það er til smá afgangur af hakki (uþb. 3 dl) Tek stundum hakk afgang og set í frysti til að eiga í þessa súpu.

Með súpunni mæli ég með þessu lífræna nachosi (ekki búin til úr erfðabreyttu korni)  sem er alveg svakalega gott og fæst í heilsuhillum víðsvegar um bæinn, ég hef keypt það í Nettó.

 

Fimmtudagur –  Grjónagrautur.  Hýðisgrjónagrauturinn með heimagerðu möndlumjólkinni.

 

Föstudagur -  Kalkúnaborgarar í heimgerðu hamborgarabrauði.  Eftir tiltekt í frystinum fann ég pakka af kalkúnahakki sem ég keypti í Fjarðarkaup um daginn.  Mjög ódýr matur.  Ég rakst á svo girnilega uppskrift af borgurum og heimagerðu hamborgarabrauði í Heilsuréttum fjölskyldunnar.  Ég hlakka mikið til að prófa þessa uppskrift.  Sætar franskar kartöflur með og væntanlega sollu kokteilsósa fyrir yngri deildina líka.

Laugardagur –  Árshátíð  og því þarf ekkert að hugsa um mat þennan daginn.

Sunnudagur –  Lax með mangósósu og sætum kartöflum.  Á sunnudaginn er komin nýr mánuður og ég ætla að fagna því með því að hafa lax í matinn. Lúxus sem ég kom ekki inn í skipulagið í febrúar.

 

Í frystinum eru til jarðaber og bláber fyrir drykki,  spurning hvort ég komist í fjarðarkaup til að kaupa frosin ananas eða mangó.  Annars verða bara epli í græna góða á morgnanna.

Þar sem ég kem til með að vera svolítið heima þessa vikuna ætla ég að nota tækifærið og nota það sem til er til að baka og búa til sjálf.  Í dag bjó ég til dæmis til kanil kex, bananabrauð og Nutella hvað? súkkulaðihnetusmjör, það er ekki hægt að kvarta yfir því.   Oft leynist hitt og þetta í skúffunum og hægt að töfra fram dásamlegar veitingar.

Vonandi verður vikan sem best hjá ykkur öllum.  

Heilsumamman.is

Tengt efni:

Heilsumamman - Ofurhollar smákökur fyrir þá sem nenna ekki að baka

Heilsumamman - Geggjuð Tíramísú “ís” kaka

Heilsumamman - Staðan eftir viku 2