Fara í efni

Lýsi og aftur Lýsi

Ég held að það sé ekki of oft sagt að Lýsi er afar hollt fyrir alla og ættu allir að taka lýsi á hverjum degi allt árið um kring.
Lýsi er hollt fyrir alla, krakka,konur og kalla
Lýsi er hollt fyrir alla, krakka,konur og kalla

Ég held að það sé ekki of oft sagt að Lýsi er afar hollt fyrir alla og ættu allir að taka lýsi á hverjum degi allt árið um kring.

Michael Clausen, barnalæknir, vill að allir taki lýsi!

Í viðtali sem Fréttatíminn átti við lækninn 4.október í fyrra kemur fram að fiskneysla Íslendinga hafi minnkað með árunum og hann hvetur til aukinnar fiskneyslu og að allir taki lýsi.

Michael, sem starfar á Barnaspítala Hringsins, segir spítalann fá töluvert af börnum, og þá sérstaklega yngstu börnin, sem ekki eru með eðlilega meltingu þar sem þau fái ekki næga fitu. Hann segir enn fremur að ef börn eru með þrálátan niðurgang sé þetta eitt af atriðunum sem skoðuð eru.

En lýsi kemur ekki bara ungum börnum til góða. Michael flutti fyrirlestur á ráðstefnu sem Heill heimur stóð fyrir 10. október, en hann hefur sérstaklega skoðað áhrif fæðu og þar með fituneyslu á hegðun og líðan.

Í erindi Michaels sagði: „Rannsóknir hafa verið gerðar á fólki með þunglyndi og það hefur jákvæð áhrif á það að neyta hás hlutfalls af omega 3 fitusýrum.“ Himnur fruma líkamans eru búnar til úr fitusýrum og eru samskipti frumanna ólík eftir því um hvernig fitusýrur er að ræða. Það er því mikilvægt að leggja áherslu á að neyta góðra fitusýra.

„Hátt hlutfall af omega 3 fitusýrum í blóði tengist almennri velferð og vellíðan.“

Heimild: Fréttatíminn.