Fara í efni

Það er gott fyrir heilsuna að fasta í fimm daga í mánuði: Hægir hugsanlega á öldrun

Vísindamenn við Suður-Kaliforníu háskóla hafa gert tilraunir á músum og þær hafa sýnt að fjögurra daga fasta tvisvar í mánuði gat dregið úr líkunum á að þær fengju krabbamein um allt að 45 prósent, lækkaði blóðsykurmagn þeirra um allt að 40 prósent og lækkaði insúlínmagnið um allt að 90 prósent.

Vísindamennirnir komust einnig að því að mýs sem föstuðu juku getu sína til að búa til nýjan vef. Til dæmis framleiddu þær nýja lifrarfrumur mun hraðar og frumurnar í líkama þeirra urðu mun unglegri. Á vef Videnskab er haft eftir Valter Longo, hjá Suður-Kaliforníu háskólanum, að þetta séu mjög spennandi niðurstöður.

Vísindamennirnir gerðu einnig tilraun með hvort þetta hefði sömu áhrif á fólk. 19 manns tóku þátt tilrauninni og var hitaeininganeysla þeirra takmörkuð fimm daga í mánuði við þriðjung þess sem er ráðlagður dagsskammtur. Eins og hjá músunum batnaði líkamlegt ástand fólksins á mörgum sviðum. Það missti magafitu, blóðsykurmagnið minnkaði og minna var af prótíni, sem tengist hjarta- og æðasjúkdómum, í blóði þeirra.

Heilsufarslegur ávinningur þessa var mestur eftir að fólkið hafði skipt þrisvar sinnum á milli hitaeiningasnauðs fæðis og venjulegs mataræðis.

Birt í samstarfi við

 Tengt efni: