Fara í efni

Kraftaverkin - hugleiðing á mánudegi

Kraftaverkin - hugleiðing á mánudegi

Þú ert kraftaverk, allt sem þú veitir athygli vex og dafnar – bæði það sem þú vilt að vaxi og dafni og það sem þú hefur engan áhuga á að geri það.

Þú ert skapari, hvort sem þú skapar í vitund eða óafvitandi, og því er mikilvægt að vanda sig og velja og veita athygli sinni markvisst.

Þegar þú veitir athygli þá veitir þú ljósi og birtu, kær­ leik sem er ást, og þegar við erum í fullri vitund, tengd tilgangi okkar og ástríðum, þá er rafmagnið á þessu ljósi í hámarki og máttur þinn sem skapara á fullum straumi.