Fara í efni

Ástæða þess að hollt mataræði er ekki eina svarið við því að vera heilbrigður

Ok, þú drekkur grænkálssafa og spínat smoothie daglega, þú borðar lífrænan, glútenfrían mat með heimatilbúinni hnetumjólk og ert alveg búin að taka út allar mjólkurvörur, glúten, hveiti, sykur og fleira.
Ræktum hugann jafnt og við ræktum líkamann
Ræktum hugann jafnt og við ræktum líkamann

Ok, þú drekkur grænkálssafa og spínat smoothie daglega, þú borðar lífrænan, glútenfrían mat með heimatilbúinni hnetumjólk og ert alveg búin að taka út allar mjólkurvörur, glúten, hveiti, sykur og fleira.

Já, þú ert svo sannarlega með mataræðið á hreinu.

En það er eitt sem oft vill gleymast. Manstu eftir að sinna og næra mikilvægasta hluta af líkamanum ?

-         Ertu ennþá með reiðar hugsanir?

-         Finnst þér þú vera óverðug/ur?

-         Ertu ennþá með hugsanir um sektarkennd, hræðslu, skömm, sorg eða hatur?

-         Ertu að velta þér upp úr peningum eða peningaleysi réttara sagt?

-         Áttu erfitt með að fyrirgefa?

-         Er hugur þinn á fullu í reiði og tengdum tilfinningum og þú átt erfitt með að róa þig niður?

Allir grænir drykkir í heiminum geta ekki komið í veg fyrir svona hugsanir, allar þessar neikvæðu hugsanir.

Buddah sagði einu sinni „What we think we become“.

Líkamar okkar eru eins og útprentun af okkar hugarástandi þannig að það sem við hugsum kemur til með að koma í ljós á einhverjum stað í líkamanum.

Hver einasta hugsun sem við höfum (og þær eru á bilinu 40 til 60 þúsund á hverjum degi) hafa áhrif á líkamann og okkar líkamlegu viðbrögð, og einnig tilfinningar okkar.

Ef við viljum virkilega vera heilbrigð þá er hugurinn fyrsti staðurinn sem við þurfum að byrja á.

Heilbrigður, rólegur, skír og jákvæður hugur er eins og tré sem hefur staðið lengi og hefur afar djúpar rætur.

Ef rætur trésins eru í lélegu ástandi þá skiptir engu máli hversu mikið þú vökvar það og nærir, tréð mun aldrei verða heilbrigt.

Það eru margar leiðir til að ná heilbrigðu og jákvæðu hugarfari, má þar nefna, að lesa góða bók sem kennir þér jákvæðni, stunda jóga reglulega eða tai chi og heilaæfingar eins og sudoku.

En það sem stendur upp úr er hugleiðsla.

Ansi margar rannsóknir hafa sýnt fram á að dagleg hugleiðsla hefur sýnt jákvæðar framfarir í heila og bætir tilfinningalegt ástand og það sem meira er, bætir ónæmiskerfið. Hugleiðsla hefur hjálpað fólki sem þjáist af þunglyndi, svefnleysi, kvíða og meira að segja MS og krabbameini.

Í gegnum hugleiðsluferlið ertu að róa hugan niður sem mun þá í leiðinni róa líkamann. Og þegar líkaminn er rólegur og afslappaður þá er taugakerfið í jákvæðu ástandi.

Þegar þessu er náð ertu komin í jafnvægi með líkama og sál. Dagleg hugleiðsla fyllir þig ró, þú finnur fyrir hamingju og ert þar af leiðandi mun heilbrigðari.

Það eru margar leiðir til að hugleiða. Þú getur prufað hugleiðslu með öndun sem dæmi.

Ef þú hefur áhuga á hugleiðslu þá mælum við með því að þú kynnir þér málið og skellir þér í jóga.