Fara í efni

Grænt orkuskot!

Grænt orkuskot!

Gleðilegt nýtt ár!

Janúar er kominn og engin betri leið að hefja árið en með því að gefa líkamanum orkuskot og fylla hann af vellíðan.

Mér þykir alltaf gott að hefja nýtt ár á smá hreinsun. Þá geri ég græna djúsa fyrir okkur hjónin sem við drekkum yfir daginn og endum svo á léttum kvöldverði.

Grænir drykkir fara svo vel í magann og geta verið sérstaklega vatnslosandi og hreinsandi sem hjálpar gegn uppþembu og bjúgsöfnun. Basísku eiginleikar græna drykksins hjálpa líkamanum einnig að losna við sykurlöngun.

Mig langar að bjóða þér að hefja árið með stæl með uppskrift af uppáhalds hreinsunardrykknum mínum og á sama tíma bjóða þér að skrá þig til leiks í ókeypis 14 daga  sykurlausri áskorun sem hefst 22.janúar!!

Ef þú hefur ekki verið með okkur í svona áskorun áður þá virkar hún þannig að í tvær vikur færð þú sendar ókeypis uppskriftir sem hjálpa líkamanum að losa við sykurlöngun og fá meiri orku ásamt innkaupalista fyrir hverja viku, ráðo g stuðning frá mér og Lifðu til fulls teyminu. Allt ókeypis!

Hafa nú yfir 20 þúsund manns tekið þátt í þessari áskorun og algengt er að henni fylgi aukin orka, bætt einbeiting og í flestum tilfellum þyngdartap!

Það eina sem þú þarft að gera til að vera með, er að smella hér og skrá þig!

DSC_9677

Ég elska myntu og nota hana því óspart í drykkina mína enda er mynta frábær fyrir bætta meltingu og einbeitingu. Það má sjálfsagt nota steinselju í staðinn eða jafnvel bæði fyrir ævintýragjarna en steinselja er talin vera ein helsta fegurðarfæðan.

Bæði mynta og steinselja eru mjög góðar kryddjurtir til að nota í græna djúsa

DSC_9675

Notið það íslenska græna salat sem fæst hverju sinni í drykkinn

DSC_9670

Nýárs orkuskot Júlíu 

1 gúrka
2 græn epli
1 sítróna
1 límóna
handfylli spínat eða grænkál
handfylli fersk mynta
engiferbútur

Setjið allt í gegnum safapressu og njótið.

DSC_9657

Ég mæli með og nota safapressu sem kaldpressar því hún varðveitir næringarefni betur og eykur geymsluþol drykkjar. Djúsinn geymist í 3 daga í kæli.

Ég vona innilega að þú prófir djúsinn og verðir með okkur í ókeypis 14 daga sykurlausu áskoruninni sem hefst 22.janúar.

Allar uppskriftirnar í áskoruninni eru einfaldar, bragðgóðar, vegan og lausar við glúten og sykur.

Smelltu hér til að skrá þig ókeypis í 14 daga sykurlausu áskorun og fyllast meiri orku!  (psst..um leið og þú skráir þig sérð þú spennandi nýtt námskeið sem við vorum að opna fyrir!!)

Vinnum saman að heilbrigðara og frískara samfélagi með sykurlausri áskorun!

Heilsa og hamingja,
jmsignature