Fara í efni

5 óvæntar fæðutegundir sem losa þig við bólgur og bjúg

5 óvæntar fæðutegundir sem losa þig við bólgur og bjúg

Hæhæ!

Uppþemba og bjúgur er svo sannarlega ekki eitthvað sem maður vill finna fyrir dagsdaglega, en því miður er það ótrúlega algengt! Sérstaklega eftir sumarið eða frí.

Ein besta leiðin að losna við bólgur og bjúg er að hreinsa líkamann og huga að breyttu mataræði og lífsstíl! Allt þetta mun ég fara ítarlega í á ókeypis fyrirlestrinum “5 skref til að tvöfalda orkuna, losna við aukakíóin og byrja haustið með breyttum lífsstíl" -  miðvikudaginn 22.ágúst kl 20:30!

Skráning er hafin hér á ókeypis fyrirlesturinn! Það eru takmörkuð pláss í boði svo ég mæli með að þú skráir þig strax!

Á fyrirlestrinum lærir þú ómissandi ráð til að hefja breyttan lífsstíl, auka orkuna og losna við sykurlöngun. Allir sem mæta í beinni fá ókeypis uppskriftir og sérstakt hreinsunarpróf!  Ég opna síðan fyrir spurningar á línunni svo þú getur spurt mig að því sem þú hefur verið að velta fyrir þér varðandi heilsuna!

Til að koma þér stax af stað deili ég með þér í dag 5 óvæntum fæðutegundum sem draga úr bólgum og bjúg.

DSC_5673

Bólgur og bjúgur geta haft aukaverkanir eins og þyngdaraukningu, síþreytu og króníska verki eða aukningu á verkjum. Það sem gæti þó komið á óvart er að bólgur og bjúgur eru talin einn helsti orsakavaldur margra sjúkdóma og kvilla eins og sykursýkis, blóðþrýstingsvandamála og liðagigt. Hér koma því 5 góðar fæðundir sem ég á alltaf til heima!

DSC_5624

Brokkólí

Flestir þekkja Brokkolí en það er í mismiklu uppáhaldi hjá fólki. Brokkólí hefur bara of marga kosti til að sleppa því. Það er ein besta uppspretta andoxunarefnisins súlfórafan sem hefur öflug bólgueyðandi áhrif. Brokkolí hefur gjarnan verið talin ofurfæða enda er það stútfullt af A, C, E, K vítamínum, B-vítamín og fólinsýru.

Ég frysti oft brokkólí og nota í búst eða drykki. Brokkolí má borða hrátt, gufusoðið, bætt útí salöt, núðlurétti eða súpur.

DSC_5619

Ber

Það eru gleðifréttir að berin séu bólgueyðandi ekki satt? Sæt og ljúffeng og allskonar möguleikar í boði! Þar á meðal hindber, brómber, bláber og jarðaber. Íslensku berin eru alltaf dásamleg og um að gera að nýta sér þau á haustin. Ber innihalda andoxunarefni, C-vítamín, anthocyanin og glútaþíon sem öll hafa bólgueyðandi eiginleika.

Ber eru auðvitað góð ein og sér, útí búst eða morgunverðarskálina.

DSC_5667

Hempfræ

Það eru ekki allir sem þekkja hempfræin, en þau eru þess virði að kynna sér því þau eru ótrúlega holl og mild á bragðið. Þau eru rík af próteini, omega 3, 6 og GLA (Gamma-Linolenic acid) sem er einstaklega bólgueyðandi sem hefur góð áhrif á vöðva, liði og hitastig líkamans  (því mjög gott fyrir konur með fyrirtíðarspennu eða þá sem glíma við gigt).  GLA er einnig frábært fyrir þá sem glíma við of háan blóðþrýsting. Hempfræin eru talin geta bætt meltingu, dregið úr sykurlöngun og aukið orkuna.

Hempfræjunum má bæta útí búst, dreifa yfir salöt eða morgunmatinn.  Mér finnst gott að lauma þeim yfir kókosjógúrt eiginmannsins og gera hempmjólkina sem ég á alltaf heima í kæli.

DSC_5656

Lax og hnetur

Holl fita er nauðsynleg og mjög mikilvægt að hafa jafnvægi á inntöku hennar. Við höfum gott aðgengi að góðum lax og öðrum feitum fisk hér á Íslandi og um að gera að nýta okkur hann. Lax og hnetur eru sérlega ríkar af Omega-3 fitusýrum sem og próteinum sem hjálpa að draga úr bólgum og hafa góð áhrif á heilastarfsemi og meltingu! Laxinn er einnig mjög ríkur af B12 sem er nauðsynlegt fyrir orku.

Nú er góður tími til að skella lax á grillið og nýta sér alla kostina sem hann býður uppá. Hnetur eru tilvalið snarl og halda blóðsykri í jafnvægi og sykurlöngun í skefjum.
 

DSC_5635

Laukur og hvítlaukur

Tvær uppáhalds bólgueyðandi fæðutegundirnar mínar í eldhúsið enda væri matreiðsla frekar bragðlaus án þeirra! Hvítlaukur hefur lengi verið þekktur fyrir að hafa góð áhrif á ónæmiskerfið og draga úr bólgum og bjúg. Laukurinn hefur hreinsandi eiginleika og inniheldur quercetin, öflugt andoxunarefni sem dregur úr bólgum og bólgumyndum.

Möguleikarnir eru endalausir þegar kemur að lauk og hvítlauk, enda henta þessar tvær fæðutegundir í nánast alla grænmetis- eða fisk rétti, hægt er að gera allskonar dásamlegar dressingar úr hvítlauk og bæta lauknum útí salöt.

Byrjaðu haustið með breyttum lífsstíl - Ókeypis fyrirlestur 22.ágúst kl.20:30

Skráning er hafin hér!
 

DSC_5836

Á ókeypis fyrirlestrinum mun ég fara betur í það hvernig má þau nákvæmu skref að taka til að breyta tvöfalda orkuna, léttast,  án þess að finna fyrir svengd eða þurfa að neita sér um neitt!

Þú munt m.a læra…

  • Hvernig þú getur byrjað að borða fyrir ÞINN einstaka líkama
  • Af hverju þú ert ekki að léttast
  • Hvernig þú getur öðlast meiri orku
  • Einfaldar leiðir sem losna við sykurlöngun strax

Þeir sem mæta í beinni fá uppskriftir og hreinsunarpróf! Að auki opna ég fyrir línunni og getur þú spurt mig ráða um heilsu þína! Á fyrirlestrinum mun ég einnig segja þér betur frá Nýtt líf og Ný þú 4 mánaða þjálfun sem hefst væntanlega!

Tryggðu þér pláss hér!
 

DSC_5940


Heilsa og hamingja,
jmsignature