Fara í efni

Mér finnst rigningin góð en ekki megrun :)

Bara hægt og rólega að koma sjálfum sér í skilning um að lífið er frábært og til að njóta . Ekki til að misbjóða á nokkurn hátt . Burtu með megrun og inn með gleði :)
Burt með megrun.
Burt með megrun.

Góðan daginn.

Já aldeilis góðan daginn :)
Nú held ég að rigningin sé að ná Seljahverfi aftur úr greipum skautasvæðis…þetta er að koma .
Lofar góðu nú getur maður farið að hreinsa garðinn og út að labba og svona.
Þótt veðrið sé búið að vera sturlað í alla nótt og halda fyrir mér vöku….þá fagna ég hverjum rigninga dropa :)
Kemur mér nær vori  .

Já þetta með að fara í megrun…léttast , mjókka minka , megrast og allan pakkann .
Svelta og ná árangri.
Það er svo langt frá mér í dag.

Ég er ekki í þeim pakkanum :)
Þannig að ég get ekki gefið neinum matseðil fyrir vikuna…þar sem þú nærð að léttast á hraða ljósins.
Það er bara ekki my style .
Ég borða ekki samkvæmt “bönnuðum matseðli”
Ég vel hreinan góðan mat.
Sleppi því sem unnið er.
Er ekki í skyndibitanum nema hollur sé….það er nóg til af honum í dag :)

Ef þú ætlar í megrun og komast í súper form fyrir sumarið úff hvað það hlýtur að liggja á þér sem fargi.
Hvað með að fara frekar í að breyta aðeins mataræðinu og hreyfa sig skipulagt .

Bara hægt og rólega að koma sjálfum sér í skilning um að lífið er frábært og til að njóta .
Ekki til að misbjóða á nokkurn hátt .
Burtu með megrun og inn með gleði :)

Jæja best að koma sér í gallann og taka á því í dag :)
miðvikudagar eru harðir í salnum og ekkert gefið eftir!

Eigið góðan dag .