Fara í efni

Léttsteikt grænmeti og allskonar.

Ég er með Rapunzel olíuna. Smakkaði svona um daginn og varð að fá þessa olíu Og þvílíkt nammi.
Léttur og þrælgóður réttur.
Léttur og þrælgóður réttur.
Hádegið.

Tabata í morgunsárið í Heilsuborginni.
Og Sigga þjálfari er ekkert að fara neitt silkimjúkum höndum um okkur kellurnar.
Alveg með þetta og bara gaman.

Svona gleði eins og Tabata er kallar bara fram í manni að gera betur.
Svo maður klikkar ekki á mataræðinu 
Fékk mér léttsteikt grænmeti , kjúklingabaunir, alfaspírur, reykta bleikju og slettu af "trikkinu yfir" en það er semsagt eftir eldun og það er graskersolia.
Ein tsk. yfir allt og þetta breytist í sælkera rétt 
Ég er með Rapunzel olíuna.
Smakkaði svona um daginn og varð að fá þessa olíu 
Og þvílíkt nammi.

Skar niður.

Papriku
Vorlauk
sveppi
Gulrætur
Mango
og steikti ásamt kjúklingabaununum.
Yddaði yfir kúrbít í rétt blálokin ( ekki gott að elda hann mikið)
Kryddaði með salt-pipar-hvítlauk-chilli

Síðan setti ég þetta á disk.
Alfa spírur yfir og reykta silunginn.
Vel af pipar og olíuna síðan bara njóta .