Fara í efni

Lax og mangó sósa

Lax ofnabakaður. Kryddaður með Herbes de Provence frá Pottagöldrum, sítrónu, salt og pipar. Eldaður eftir smekk.
Lax og gott meðlæti
Lax og gott meðlæti

Kvöldmaturinn.

Þetta er minn uppáhalds matur.

Og ég gerði svo góða sósu með þessu að þetta toppaði allt.

Lax - ofnbakaður:

Kryddaður með Herbes de Provence frá Pottagöldrum, sítrónu, salt og pipar.
Eldaður eftir smekk.
Ég kýs að hafa hann á háum hita inn í ofni og elda stutt.
Vil hafa hann mjúkan og góðan :)

 

Meðlæti:

Blómkálsgrjón
Salat og tómatur
avacado
Mangó sósa

Mangó sósa:

1 vel þroskað mango
3 msk. Ab-mjólk frá Örnu
3 msk. grísk jógúrt
1/2 tsk. Hunts sinnep (fat free)
1 msk. kókos flögur
örlítið af cayenepipar eftir smekk.

Aðferð:

Flysja Mangó og skella í blandara ( passa að setja ekki steininn í miðjunni með)
Öllu hinu bætt út í.
Unnið í silkimjúka sósu.

Má líka setja smá kókos flögur auka á toppinn og pipar.