Fara í efni

Vigtin er ekki í frjálsu falli lengur.

Að halda sig innan ramma ekki þyngjast er stórsigur fyrir mig. Því ég hef bara kunnað að léttast "pompa" í vigt...og fara svo hratt upp aftur. Snillingur í þeirri gerð af megrun.
Hugarleikfimi.
Hugarleikfimi.

Góðan daginn .

Seljahverfið orðið annsi jólalegt og fallegt.
Og ég sem sá eitthvað sem gæti minnt á blóm að koma upp úr moldinni í gær.....sennilega farin að sjá illa 

Já það er þetta með að missa kílóin.
Þegar að allt lífið hefur nánast snúist um að missa kíló og verða mjó er erfitt að koma sér í annan gír.
Að vera stopp á vigtinni er líka sigur 
Ég hef verið stopp á vigtini lengi vel núna.
Og þetta getur farið með mig í rússibana og aldingarða bara eftir því hvernig ég næ toppstykkinu þann daginn :)

En ef ég bara hlusta!!
Hlusta á líkamann.
Og læt hugann ekki toga mig í kaf þá ætti þetta að vera í lagi :)
Að hugsa um líkamann bæði með góðri næringu og hreyfingu er alltaf plús.
Maður kemur alltaf út í plús.
Að halda sig innan ramma ekki þyngjast er stórsigur fyrir mig.
Því ég hef bara kunnað að léttast "pompa" í vigt...og fara svo hratt upp aftur.
Snillingur í þeirri gerð af megrun.

Svo að koma sjálfri sér í skilning um að þott vigtin sé ekkki í frjálsu falli þessa dagana að þá er þetta SAMT frábært :)
Ég er að styrkjast.
Borða hollan mat.
Ég er frísk.
Ég er komin í gott form.
Get gengið inn í fataverslun og bent á það sem mér langar í og komist í það.
Get gengið inn í íþróttaversun og fengið ræktarföt sem passa...þarf ekki að ganga með veggjum í von um að engin afgreiðslustarfsmaður yrði á mig og ég þurfi að feisa SORRY ekki til í inni stærð.
Amen ég er fín :)

Eigið góðan dag .