Fara í efni

Fyrir og eftir myndir til að trúa því sem gerist.

Æfa og borða hollt skilar árangri . Þetta tekur allt saman tíma.
Þetta tekur sinn tíma.
Þetta tekur sinn tíma.

Góðan daginn.

Jæja föstudagur eins skrýtið og það er.
En komin í gallann :)
Og það er föstudags gleði.
Því í mínum púl tímum á föstudögum erum við léttar í lokin :)
Það er svo ómetanlegt að æfa með kraftmiklu og skemmtilegu fólki.
Og mínir ræktarvinir eru ekki að spara átökin :)
Enda er árangurinn ekki lítill.

En að komast í svona form að manni hlakki til að taka á.
Geti komist í einhvern galla og reimað á sig skónna og tekið á eins og naut.
Það gerist bara hægt og rólega.
Og maður þarf ekki að vera þvengmjór til að vera í bara fínu formi :)
Heldur bara ekki gefast upp.
Æfa og borða hollt skilar árangri .
Þetta tekur allt saman tíma.

Ég þarf alltaf að setja saman myndir og spá og spöklera öðruhverju .
Því ég sé ekki neinn mun nema á myndum.
Það er bara svoleiðis.
Eins skrýtið og það hljómar.
Því þolið og þrekið er eins og hjá annari konu.
En hugurinn er alltaf feitur.
Það er hugurinn sem stjórnar.
Og það þarf að passa upp á þann hluta vel.
Ég er ekki að missa kílóin þessa dagana.
Heldur er líkaminn að styrkjast og mikil breyting á allri líkamsbyggingu .
En vigtin er sú sama.
Og þar verður hugurinn pirraður.
Svo til að gefast ekki upp verður maður að treysta á árangur....trúa nógu heitt.
Aldrei gefast upp.
Mæta og græja þetta.
Passa það sem í matarkörfuna fer.
Elda rétt...borða fallega.
Njóta umfram allt lífssins og hafa gaman af.
Hugurinn þarf næringu.

Jæja þá er að koma sér í Heilsuborgina og byrja daginn .
Síðan tekur amstrið við.
Nóg að gera :)

Eigið góðan dag .