Fara í efni

Góður austurlenskur réttur.

Byrja á að merja hvítlauk og chilli saman og bæta við sítrónusafa. Hræra vel saman með 2 msk. Tamara sósu.
Sjúklega góður þessi.
Sjúklega góður þessi.
Kvöldmaturinn.

Dúddamía hvað þetta var gott 

Austurlenskur réttur með hrísgrjónanúðlum.

Rétturinn.

Nautagúllas
2 Rauðar paprikur
1 Rauðlaukur
4 Gulrætur
1 Askja Sveppir
1/2 Askja Baunaspírur
3 Rif hvítlaukur
1/2 Rauður chilli
Safi úr 1/2 sítrónu
Garam masala pottagaldra krydd
Salt 
nýmulin pipar
1 msk. Fish sause
4 msk. Tamara sósa frá sollu
1 tsk. Hressileg af grænmetiskrafti
3 dl. vatn

Hrísgrjónanúðlur.

Aðferð.

Byrja á að merja hvítlauk og chilli saman og bæta við sítrónusafa.
Hræra vel saman með 2 msk. Tamara sósu.
Þá að skera gúllasið í litla bita og hræra öllu vel saman.
Salt og pipar.

Gott er að gera þetta kvöldinu áður :)

Skera niður allt grænmetið og steikja ( mér finnst gott að sjóða gulræturnar í 3min áður).
Þegar vel steikt bæta kjötinu út í og krydda ( garam masala) steikja áfram.
Það þarf ekki mikla eldun því kjötið vel meirnað.
Þá bæta öllu hinu út í og hræra öllu vel saman og sjóða upp.

Gott að nota þurkað chilli ofan á réttinn eftir að diskinn er komið .
Nú svo er náttúrlega voða "Notý" að setja oggupoggu af steiktum hvítlauk .

Þetta er svo gott og alveg boðlegt í smá matarboð með prjónum skemmtileg heitum :)