Fara í efni

Fersk á fermingarborðið

Þessi er æði að eiga til í frysti. Græja svo berjasósu þegar á að nota kökuna.
Falleg á veisluborðið.
Falleg á veisluborðið.

Dásamleg kaka með sjúklegri berjasósu. Og skotstund að græja þessa.

Hrákaka með berjasósu.

2 bollar cashews hnetur frá Sólgæti​ (hafa í bleyti í tvo tíma)
1 bolli möndlu mjöl (bara búa til sjálf ég nota Sólgætis möndlur)
Tæplega bolli steinlausar Sólgætis döðlur Sítrónusafi úr 1 1/2 sítrónu
1/4 bolli gott sýróp (má vera minna)
2 tsk. vanillu dropar eða púður
1/2 bolli kirsuber eða Blæjuber 1/2 jarðaber

 

 

 

 


Aðferð:

1. Fyrir botninn.

Blanda saman möndlumjölinu og döðlunum í matvinnsluvél.
Tilbúið þegar allt er komið vel saman.
Þá setja í form með lausum botni og smellu á hlið.

2. Fyllingin.

Blanda saman cashew hnetum, sítrónusafa, sýrópi og vanilludropum.
Blanda þessu vel saman í matvinnsluvél.
Og skella yfir botninn.
Inn í frysti í klukkutíma.

3. Sósan ofan á er sjúklega góð .
Og hægt að nota með ís og grískri jógúrt .
Aðferð við að búa til sósuna.
Setja jarðaber og steinlaus kirsuber í blandara og vinna saman.
Það er mjög gott að eiga þessa köku til í frysti en ekki setja sósuna á fyrr en eftir.

Þessi er æði að eiga til í frysti.
Græja svo berjasósu þegar á að nota kökuna.
Skella berjablöndunni ofan á frosna kökuna og geyma í kæli í 45-60 min aður en borin framm.
Fer eftir hvað mikið frost maður vill hafa í henni.