Fara í efni

Boost í gleri.

Boost í gleri bara alveg málið . Helst lengur kalt og gaman að njóta þess að drekka úr fallegri krukku.
Boost í gleri.
Boost í gleri.

Það er svo miklu betra að njóta þess að fá sér boost úr gleri. Velja sér fallega krukku og þetta helst miklu ferskara og kaldara í gleri.

Ég fann þessa fallegu krukku í Prag fyrir nokkrum dögum :)
Og hún var svo sannarlega velkomin í eldhúsið mitt.

Boost.

2 msk. vanillu skyr
Hressileg lúka frosin bláber
1 banani frosin
Hressileg lúka frosin ananas
Kreista vel safa úr appelsínu og bæta við vatni eftir smekk.

Allt í blandara og vinna vel :)
Ég er svo hrifin af boost drykkjum sem eru þykkir og ískaldir.