Fara í efni

Brauðið sem börnin elska

Vessogú….þetta er æði brauð sem allir elska. Barnvænt og flott :)
Súper gott brauð.
Súper gott brauð.

Nýbakað brauð.

Minn drengur biður mig um svona brauð með smjöri,sykurskertri sultu og osti á hverju ári fyrir uppskeruhátið hjá Fjölni :)
Krakkarnir að klára körfuboltann og allir koma með eitthvað gómsætt á hlaðborð.

Vessogú….þetta er æði brauð sem allir elska.
Barnvænt og flott :)

Brauðið góða.

Innihald:

500 gr Heilhveiti (notaði frá Finax gróft mjölmix…glutenfree)
1,5 msk vínsteinslyftiduft
1 1/2 tsk salt (nota gott salt)
400 ml AB mjólk (ég nota frá Örnu)
1 tsk síróp
40 gr haframjöl
20 gr Omega-fræblandan frá Heilsu

Aðferð:

Blandið mjölinu, vínsteinslyftidufti og salti saman í skál.
Hrærið AB mjólk og síróp saman og hellið út í skálina.
Hrærið varlega í deiginu .
Gætið þess að hræra ekki of mikið.
Bætið haframjölinu, fræjunum eða öðru því sem þið viljið nota út í deigið og hrærið varlega nokkrum sinnum.
Bætið svolitlu vatni við ef deigið er of þurrt. En alls ekki hafa of blautt.
Ég nota silicon form.
Bakið við 180-190°C í 40 – 50 mínútur.