Fara í efni

Allt kemur þetta með tímanum.

Ekkert sem vert er að hanga í er auðvelt :) Svona lífsstílsbreyting á ekki að vera Jó-jó . Heldur uppbygging á sál og líkama.
Þettur kemur allt saman bara þolinmæðina í gang.
Þettur kemur allt saman bara þolinmæðina í gang.
Góðan daginn

Er ekkert að gerast?
Allt á bömmer ... bara borðar?
Tuskast í ræktina og kýlir sjálfan þig að innan .... virkilega boxar úr þér allan þrótt.
"Hættttussu"

Byrjaðu á því að hætta að pota og gagnrýna sjálfan þig.
Taktu þessu rólega.
Borðaðu þig niður.
Settu þér markmið og farðu og njóttu þess að hreyfa þig :)
Ekki fara í gallann og líta á þessa sem refsingu.

Ekkert sem vert er að hanga í er auðvelt :)
Svona lífsstílsbreyting á ekki að vera Jó-jó.
Heldur uppbygging á sál og líkama.

Ég held að það sé raunverulega aðveldast af þessu öllu að missa kílóin.
En að halda þeim frá og halda áfram að vilja meira út úr sjálfum sér er erfitt.
Það þarf að vera endalaus hvatning á sjálfan sig :)
þess vegna er gagnrýni ekki í boði.
Nema jákvæð og uppbyggjandi !!

Við erum svo föst á vigtinni.
Ég er það líka ..... og ef grömmin eru að kýlast upp fer ég í fýlu.
Já þetta er bara svona .
En ég reyni og held áfram að reyna láta það ekki draga mig niður.
Heldur held trúnni á lofti að ég geti þetta :)
Og bara það að halda vigtinni í skefjum er flott.
Ég þarf núna að hafa fyrir hverju grammi sem fer niður.
En ég gefst ekki upp.
Ætla ekki að láta svona vitleysu taka yfir það góða sem ég býð sjálfri mér upp á.
Hollt líf .... góðan mat og hreyfingu. 
Það er það sem við þurfum.
Ekki gagnrýni og niðurbrot.

Njóðið dagsins.