Fara í efni

Hvar verslar þú Sólveig ?

Jú við erum náttúrlega öll sammála að hér á landi er matvara lúxusvara því miður. Og á að hækka enn meir með hækkandi matarskatti. Sem ég fordæmi!
Að finna hollustuna.
Að finna hollustuna.
Góðan daginn.

Ég er svo oft spurð ...
"hvar verslar þú eiginlega"
"er þetta heilsubrölt ekki dýrt"
"ertu bara að versla í heilsubúðunum"

Ég versla allstaðar þar sem ég finn góða vöru á góðu verði 
Þær búðir sem eru næst mér eru Þín Verslun Seljabraut sem er mín uppáhalds búð.
Þar kemst ég í kjötborð 
Og allar tegundir af Pottagaldrakryddum.
Og alltaf grænmeti sem er kaupandi.
Nettó er með fullt af tilboðum þar er ég líka annsi mikið 
Og mér finnst grænmetis og ávaxtadeildin súper góð þar.
Krónan sérstaklega í Lindum er frábær fyrir hollustuna.
Og þeir eiga alltaf til svo góðan ferskan Lax.
Bónus ...úff af því ég verð.
Víðir og Þín verslun væru þær búðir sem ég helst mundi vilja versla við.
Svo á ég mér líka eina uppáhalds búðBændamarkaður frú Laugu það er eins og lítill konfekt markaður fyrir mig :)

Síðan á sumrin er maður útum allt þar sem grænmetið fæst á góðu verði :)
Og dásamlegt að skreppa í Mosó og hlaða sig upp.

Ég elska góðar fiskbúðir þ
Fiskikóngurinn er flottastur .
Hafið kemur líka sterkt inn.
Og fiskbúðin í Mjódd er líka æði.
Annars bara endilega gott fólk kíkið í fiskbúðir ótrúlega flottar fiskbúðir sem við eigum hérna á íslandi.

Mínir veitingastaðir fyrir skyndibita...
Culiacan HollurogGóður
Gló
Tokyo Sushi
LIFANDI markaður
Og örugglega margir í viðbót :)

En er þetta ekki bara alltof dýrt.....
Neibb.
Þegar að þú ert komin með rútínu á góða matinn.
Hreinan mat.
Hættir að kaupa ruslið.
Og býrð þinn mat til sjálf/ur þá er þetta ekki neitt til að grenja yfir .
Jú við erum náttúrlega öll sammála að hér á landi er matvara lúxusvara því miður.
Og á að hækka enn meir með hækkandi matarskatti.
Sem ég fordæmi!

Ég kaupi ekki eina dollu af lyfjum lengur.
Spara mikið þar.
Gat hætt á öllum lyfjum við að breyta um lífsstíl.
Það er fyrir mér stæðsti sigurinn :)
Og lyfin eru dýr!

Nú svo er um að gera þekkja bónda og sjómenn .
Því þá er hægt að ná matarreikningum vel niður .
Á sumrin rækta sitt grænmeti .
Og allt árið í kring að rækta sínar kryddjurtir.

Lífið er ekki einn breiður vegur heldur allskonar.
Og maður þarf að hafa fyrir þessu öllu.
Meta og velja hvað hentar manni.
En fyrir mitt leiti kýs ég hreina matinn og þakka hvern dag sem ég vakna frísk og til daginn .

Komin í gallann...Tabata í morgunsárið 

Njótið dagsins