Fara í efni

Vestmannaeyjahlaupið 2025

Vestmannaeyjahlaupið verður haldið laugardaginn 6. september.
Hlaup sem enginn má missa af
Hlaup sem enginn má missa af

Vestmannaeyjahlaupið verður haldið laugardaginn 6. september.

Keppnisvegalengdir og ræsing:
Í boði eru 5 km og 10 km en ræst er við Íþróttamiðstöðina kl. 12:30.

Keppnisgögn og skráning:                                                                                                                                                      Keppnisgögn verða afhent milli kl. 17 og 19 föstudagskvöldið 5. september í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Þeir sem koma samdægurs geta sótt gögn þangað á laugardeginum kl.11:00 - 12:30.

Eitt þátttökugjald 4.000 kr er í hlaupið, óháð vegalengd. Hlauparar fæddir 2008 og síðar (15 ára og yngri) fá frítt en verða að skrá sig í hlaupið.

Skráning fer fram hér https://netskraning.is/vestmannaeyjahlaupid/ en skráningarfrestur er til kl. 18:00 þann 5. september

Verðlaun
Veitt eru verðlaun fyrir fyrstu þrjá í karla og þrjár í kvennaflokki í hvorri vegalengd.

Verðlaun í 10 km

  • 1. sæti 100.000 kr
  • 2. sæti 50.000 kr
  • 3. sæti 25.000 kr

Verðlaun í 5 km

  • 1. sæti 50.000 kr
  • 2. sæti 25.000 kr
  • 3. sæti 15.000 kr

Einnig verða veitt útdráttarverðlaun.

Aðstaða fyrir og eftir hlaup
Íþróttahúsið verður opið fyrir og eftir hlaup og hægt er að fara í sund þar og er það innifalið í gjaldinu.

Ferðir á staðinn
Fyrir þá sem koma ofan af landi þá er um að gera að bóka ferðina yfir tímalega: herjolfur.is

Frí rútuferð í boði fyrir þá sem koma með 10:45 ferðinni, frá bryggju upp í íþróttahús.

Nánari upplýsingar
Allar upplýsingar um mótið eru inn á vefsíðu hlaupsins vestmannaeyjahlaup.is
Þú getur líka fylgst með á facebook

Upplýsingar veitir Sigmar Þröstur Óskarsson í síma 895-3339 eða Magnús 897-1110. eyjaskokk@gmail.com