Fara í efni

Globeathon, 150 manns tóku þátt

150 manns tóku þátt í fyrsta Globeathon hlaupinu og voru meðal þúsunda annarra sem þátt tóku í 80 þjóðlöndum
Globeathon, 150 manns tóku þátt

Í dag stóð Líf, styrktarfélag kvennadeildar Landspítalans fyrir alþjóðlegu hlaupi, Globeathon, sem haldið var í 80 löndum með það að markmiði að efla vitund, þekkingu og rannsóknir á krabbameini í kvenlíffærum. Þetta er í fyrsta sinn sem hlaupið er haldið en stefnt er að því að halda það árlega og er dagsetningin 14. september 2014 komin á blað.

Sigurvegarar dagsins voru þau:

5 km kvenna    Anna Eva Steindórsdóttir 23:26 mín

5 km karla       Kristján Helgason 25:03 mín

10 km kvenna Björk Steindórsdóttir 51:45 mín

10 km karla    Tómas Þorsteinsson 42:25 mín