Fara í efni

Aníta keppir í New York

Aníta Hinriksdóttir ÍR keppir næstkomandi laugardag þann 15. febrúar, á einu þekktasta innanhússmóti heimsins í frjálsíþróttum.
Aníta keppir í New York

Aníta Hinriksdóttir ÍR keppir næstkomandi laugardag þann 15. febrúar, á einu þekktasta innanhússmóti heimsins í frjálsíþróttum. Þetta eru hinir frægu Millrose Games en mótið hefur verið haldið í New York allt frá árinu1908. Lengst af var mótið haldið í Madison Square Garden en árið 2012 var það flutt í Washington Heigts hverfið í Manhattan í glæsilegust frjálsíþróttahöllina vestanhafs.

Aníta fær verðuga keppni í 800 m hlaupinu en sterkust keppinautarnir er Ajee Wilson, heimsmeistari unglinga árið 2012 og 8. á heimslistanum fyrir árið 2013. Besti tími Ajee í 800n er1:58,21 mín. Annar keppandi, Natoy Goule frá Jamaica, á einnig betri tíma en Aníta, eða 1:59,33 mín og var hún í 31. sæti á heimslistanum árið 2013 á meðan Aníta var í 44. sæti með sinn besta tíma 2:00.49 mín sem hún hljóp 30. júní 2013 í Mannheim í Þýskalandi. Innanhúss á Aníta best 2:01.81 mín síðan 19. janúar á þessu ári.

Hlaupið fer fram kl. 16:38 á NY tíma, 21:38 að íslenskum tíma.

http://results.nyrrmillrosegames.org/