Fara í efni

Sex einfaldar daglegar venjur til að halda heimilinu snyrtilegu – Vendu þig á þetta

Það getur verið mál að halda heimilinu snyrtilegu þegar allt er á fullu og mikið að gera.
Sex einfaldar daglegar venjur til að halda heimilinu snyrtilegu – Vendu þig á þetta

Það getur verið mál að halda heimilinu snyrtilegu þegar allt er á fullu og mikið að gera.

En ekki geyma það til morguns sem þú getur gert í dag. Með því að gera eitthvað á hverjum degi má halda heimilinu snyrtilegu og í röð og reglu.

Gerðu þessi 6 atriði hér að neðan að daglegri rútínu:

1. Hver hlutur á sinn stað stað

Það er alltaf gott þegar hver hlutur á sinn stað og þannig verður heimilið afskaplega vel skipulagt. Finndu hverjum hlut á heimilinu sinn stað og farðu svo yfir það daglega hvort ekki sé allt á sínum stað.

Með því að gera þetta daglega (og það þarf ekki að taka nema 5 mínútu) þá safnast ekki draslið upp hér og þar um íbúðina.

2. Að búa um rúmið

Búðu um rúmið daglega – á hverjum morgni. Þetta gefur tóninn fyrir daginn. Það verður einhvern veginn allt svo miklu snyrtilegra þegar búið er að búa um. Svo er líka miklu notalegra að koma heim þegar svefnherbergið er fallegt og rúmið umbúið.

Þetta auðveldar svo sannarlega við það að halda heimilinu snyrtilegu. Þetta er einn af þessum einföldu en góðu hlutum.

3. Þegar þú eldar, bakar og vinnur í eldhúsinu

Gættu þess þegar þú ert að sýsla í eldhúsinu að þrífa og ganga frá jafnóðum. Ekki safna öllu saman í vaskinn og út um öll borð.

4. Þurrkaðu og þrífðu jafnóðum

Þegar sullast og skvettist er langbest að þrífa það upp jafnóðum því þegar blettirnir þorna verður erfiðara að þrífa þá.

5. Að þrífa eldhúsgólfið . . . LESA MEIRA