Hér að neðan eru frábærar leiðbeiningar fyrir hið fullkomna slökunarbað.
Það er oft gott að taka stutta sturtu áður en þú leggst í bað, þá færðu ekki þessa tilfinningu að þú liggir í óhreinindum dagsins.
Vertu viss um að baðkarið sé hreint og baðherbergið sé líka tandurhreint þannig að þér líði enn betur þegar þú liggur í baðinu. Settu einnig náttfötin eða kósý fötin á ofninn svo þau séu volg þegar þú ferð í þau.
Þú getur haft ákveðið þema fyrir baðið, t.d ef þú vilt sofna vel eftir bað þá er meiriháttar að nota lavender baðsalt eða olíu. Passaðu að nota ekki gervi-lavender salt eða olíu, notaðu náttúrulegt.
Passaðu að baðvatnið sé ekki of heitt, það á að vera mátulegt. Ef það er of heitt þá gæti þig svimað en ef það er of kalt þá er það óþæginlegt og þú gætir endað með kvef.
Veldu bestu handklæðin þín, helst 100% bómull og hafðu nóg af kertum í baðherberginu til að fá ljúft dauft ljós til að ná slökun. Ekki hafa kveikt á loftljósinu og alls ekki vera með ilmkerti.
Ef þú átt baðkodda sem hægt er að blása upp þá skaltu endilega nota hann undir hálsinn, annars má nota mjúkt handklæði.
Gott er að hafa uppáhalds rólegu tónlistina þína en einnig er hægt að finna á youtube helling af lagalistum með slakandi tónlist (sjá myndband fyrir neðan).
Undirbúðu uppáhalds drykk og snakk og vertu viss um að það sé innan handar svo þú getir teygt þig í það ef þig langar í nart eða sopa af góðum safa eða jafnvel léttvíni.
Núna bætir þú út í baðvatnið c.a 8 dropum að uppáhalds olíunni þinni. Lavender olían er sú sem mælt er með fyrir slakandi bað. Einnig er vanilluolía afar góð í baðvatn.
Má sleppa: settu tvo bolla af náttúrulegu baðsalti – lavender t.d og einnig má nota 1 til 2 bolla af Epsom salti.
Skelltu hárinu upp í teygju.
Farðu varlega ofan í baðið því ekki viljum við detta eða renna til og leggstu ofan í með allan líkamann, einnig axlir. Það er gott að setja bómullarhnoðra sem hafa legið í ísköldu vatni yfir augun. Þeir draga úr bólgum og þrota. Einnig má nota kalda gúrku.
Ef þú vilt, bleyttu þá andlitið og skelltu á þig andlitsmaska. Svo er bara að liggja eins lengi og þú vilt og slaka vel á. Mundu samt að þvo maskann afar vel af.
Þegar þú ert orðin algjörlega afslöppuð þá skaltu taka 100% flónnel klút til að strjúka yfir líkamann í baðinu.
Þegar þú ert svo búin í baðinu skaltu þurrka þér vel og bera á þig uppáhalds body kremið þitt.
Eftir baðið er mikilvægt að halda áfram að slaka á. Fáðu þér góðan heitan bolla af uppáhalds teinu þínu, helst slakandi te án koffeins.
Núna er komið að því að skríða upp í rúm. Best er ef það er tandurhreint á rúminu. Ef þú ætlar ekki að sofna strax þá er mælt með að grípa í góða bók og halda áfram að slaka á.
Ég vona að þetta komi ykkur til nota næst þegar slaka þarf á stressuðum taugum.
Njótið ~
Heimild: wikihow.com