Fara í efni
Fiskikóngurinn eldar humar (uppskrift í lýsingu)

I -- 18. þáttur

Fiskikóngurinn

Magnús Ingi Magnússon heimsækir Fiskikónginn í 18. þætti annarrar þáttaraðar Eldhúss meistaranna. Uppskriftirnar að réttunum sem reiddir eru fram er að finna hér fyrir neðan.

Þátturinn er frumsýndur mánudaginn 21. febrúar kl. 21.30 og endursýndur reglulega, auk þess sem hægt er horfa á hann á vef ÍNN.

Pönnusteiktur humar með hvítlauk
fyrir 4

Hráefnið:
2 kg humar
1 búnt steinselja
300 g smjör
3 heilir hvítlaukar
1/2 l rjómi
2 tsk koníak
1 tsk tómatþykkni
1/2-1/1 chilipipar -- rauður eða grænn
Olía til steikingar -- veljið góða olíu
Maldonsalt
Svartur pipar úr kvörn

Aðferðin:
Humarinn klofinn í tvennt með beittum hníf, svarta röndin hreinsuð úr honum, skolaður upp úr vatni og þerraður með viskustykki eftir hreinsun. Humarinn steiktur upp úr olíu og hvítlaukssmjöri (sjá neðar) í jöfnum hlutföllum. Best er að steikja humarinn ekki allan í einu heldur í 4-5 skömmtum. Steikt á háum hita í eina mínútu, bara með kjötið niður á pönnuna. Þegar allur humarinn er steiktur er hann settur til hliðar í skál. Allur hvítlaukurinn ásamt hálfum chilipipar (má vera með fræjunum en þá er hann sterkari) settur á pönnuna og svissaður létt upp úr hvítlaukssmjöri, svo er tómatþykkni bætt út í ásamt koníaki. Rjóma hellt yfir og steinseljunni bætt við. Kryddað til með salti og svörtum pipar úr kvörn. Þegar sósan er tilbúin er hrikalega gott að setja í hana 200 g smjör og láta það bráðna í henni, en sósan má ekki sjóða eftir að smjöri er bætt við.

Borið fram með fersku salati og hvítlauksbrauði.

Hvítlaukssmjörið:
1 chilipipar, fræhreinsaður
1 búnt steinselja
3 heilir hvítlaukar
500 g smjör
1 msk maldonsalt
Reykt paprikuduft á hnífsoddi
Svartur pipar úr kvörn

Allt sett saman í matvinnsluvél. Gæta þarf þess að láta smjörið standa við stofuhita í 3 klst. áður en það er sett í matvinnsluvélina.

Ofnbakaður humar
fyrir 4

Hráefnið:
2 kg humar, helst stór eða millistór
Hvítlaukssmjör (sjá uppskrift ofar)
3 dl hvítvín/rjómi
Maldonsalt
Svartur pipar úr kvörn

Humarinn klipptur upp eftir bakinu, svarta röndin hreinsuð úr honum undir köldu rennandi vatni og hann síðan þerraður með viskustykki. Hvítlaukssmjöri makað á humarinn, u.þ.b. 1 tsk á hvern humar ef hann er stór -- ekki spara hvítlaukssmjörið. Humrinum raðað í eldfast mót og rjóma hellt yfir og/eða hvítvíni. Grillaður í ofni á hæsta hita í u.þ.b 3 mínútur -- ALLS ekki lengur. Þegar humarinn er tekinn úr ofninum bráðnar smjörið ofan í hvítvínið/rjómann. Gott er að dífa hvítlauksbrauði ofan í.

Borið fram með fersku salati, hvítlauksbrauði og bakaðri kartöflu með sýrðum rjóma.

  • Category

  • Licence

    Standard YouTube Licence

  •  

  • Fiskikóngurinn eldar humar (uppskrift í lýsingu)
  • How to Lose Belly Fat: 5 Minute Abs
  • Heilsuborg 4
  • Melkorka sýnir styrktaræfingar
  • 100 góð heilsuráð " Tips "
  • Verður hárið á þér þurrt, úfið og rafmagnað í kuldanum?
  • Jóga í snjónum eða Snjó-ga, það er hressandi!
  • Að hlaupa í djúpum snjó
  • Spa dagur heima við, það er snilld!
  • Hvernig er best að losna við þurra og sprungna hæla - þetta er snilld!
  • Heilsuborg 3
  • Heilsuborg 2
  • Frábær leið til að klippa toppinn á barninu þínu
  • Fljótleg og auðveld fótsnyrting
  • Magavöðvar á 3 mínútum
  • Djúpnæring með kókósolíu