Fara í efni

Þriðjungur hjóna eldri en 50 ára stundar aldrei kynlíf

Kannski er kynlíf þitt fjörugt. En hvað um alla hina? Fyrstu niðurstöður úr könnun sem enn stendur yfir og nær til rúmlega átta þúsund manns fimmtíu ára og eldri í Bandaríkjunum gefur vísbendingu um hvað er að gerast í samböndum og svefnherbergjum þátttakendanna.
Þriðjungur hjóna eldri en 50 ára stundar aldrei kynlíf

Kannski er kynlíf þitt fjörugt. En hvað um alla hina? Fyrstu niðurstöður úr könnun sem enn stendur yfir og nær til rúmlega átta þúsund manns fimmtíu ára og eldri í Bandaríkjunum gefur vísbendingu um hvað er að gerast í samböndum og svefnherbergjum þátttakendanna.

Greint er frá könnuninni á vef aarp.com.

Lifðu núna ákvað að endursegja greinina og stytta en hana má nálgast í heild hér. Félagsvísindamenn eru strax farnir að álykta út frá könnuninni og gefa góð ráð.

Kyssirðu eða faðmarðu maka þinn innan um annað fólk?

Næstum 32% karla og 48% kvenna segja nei. Það að sýna hvort öðru ástúð innan um annað fólk virðist vera mjög gott fyrir sambandið, 68% þeirra sem faðmast ekki á almannafæri segjast vera óánægð með maka sinn. Til samanburðar segjast 73% þeirra sem faðmast að þau séu ánægð með maka sinn. Það eru  þau pör sem sýna hvort öðru reglulega ástúð þar sem aðrir sjá til.

Ráð: Ekki halda aftur af þér og ekki hafa áhyggjur af því hvað nágrannarnir hugsa. Að sjá fólk kyssast fær annað fólk yfirleitt til að brosa og sýnir að ástin getur vel þrifist í langtíma sambandi.

Hefurðu lesið tölvupóst maka þíns?

Allt að 39% þáttakenda viðurkenna að hafa stolist til að kíkja á póst maka síns. Jafnmargir hamingjusamir og óhamingjusamir viðurkenna að hafa kíkt.

Ráð: Flestum finnst neikvætt að komast að því að einkalíf þeirra sé ekki virt. Ertu viss um að þú viljir valda því?

Hversu oft haldist þið í hendur?

78% para segjast haldast oft í hendur. En hér eru það yngri samböndin sem eru að halda hlutfallinu uppi. Eftir að sambandið hefur staðið í tíu ár eða lengur hættir fólk að mestu að haldast í hendur.

Ráð: Að grípa í hönd makans getur endurnýjað tengslin í löngu sambandi. Rannsóknir sýna að það að haldast í hendur getur jafnað ágreining.

Hversu oft tjáir þú maka þínum ást?

Meira en 90% karlmanna tjá konum sínum ást reglulega á meðan hlutfallið hjá konum er 58%. Hamingjusömustu pörin, 85% af báðum kynjum, segja hvort öðru a.m.k. vikulega að þau elski hvort annað.

Ráð: Það má alveg taka þessu rólega. Að segja „ég elska þig“ daglega virðist gera mjög mikið fyrir sambandið. Segðu það í lok símtals eða áður en farið er að sofa.

Færðu það einhvern tímann á tilfinninguna að maki þinn stundi kynlíf með þér af tómri skyldurækni?

12,5% þeirra sem hafa verið í sambandi skemur en í eitt ár upplifa það á móti 49,6% þeirra sem hafa verið í sambandi í tuttugu og eitt ár eða lengur.

Ráð: Stingdu upp á kynlífi þegar vel liggur á ykkur og þið eruð óþreytt en slepptu því samt ef makinn er ekki í stuði. En láttu samt þessa tilfinningu að makinn sé að þóknast þér ekki eitra sambandið. Það getur gerst stöku sinnum og fjölmargir þáttakendur könnunarinnar segja að þrátt fyrir það að þau stundi kynlíf af skyldurækni séu þau samt mjög hamingjusöm í sínum samböndum.

Hefurðu notað kynlífsleikföng með maka þínum?

60% kvenna og 40% karla segja já við þeirri spurningu. Titrarar hafa lengi verið hluti kynlífs þáttakenda.

Ráð: Kynlífsleikföng eru löngu orðin að hverri annari neysluvöru. Þau má auðveldlega finna á netinu og í sérverslunum. Ef þú ert forvitin ættir þú að stinga uppá því við makann að þið kynntuð ykkur málið saman.

Hversu oft kyssist þið af ástríðu? . . . LESA MEIRA

 

 

 

 

Könnun

Hvaða hreyfingu stundar þú?