Fara í efni

Ert þú með “bucket lista” yfir það sem þig langar að prufa í kynlífi?

Þú ert nú eflaust með lista yfir það sem þig langar að gera í lífinu – kannski hlaupa maraþon, synda með höfrungum eða fallhlífarstökk.
Ert þú með bucket lista ?
Ert þú með bucket lista ?

Þú ert nú eflaust með lista yfir það sem þig langar að gera í lífinu – kannski hlaupa maraþon, synda með höfrungum eða fallhlífarstökk.

En hefur þú spáð í alla heitu hlutina sem að svefnherbergið (eða aðrir staðir innan veggja heimilisins) bjóða upp á ?

Að gera lista yfir þá hluti sem þig langar að prufa í kynlífinu gerir þá frekar raunverulega en ella. Hér eru nokkur “moves” til að koma þér af stað með þinn lista.

Uppliftingin

Sexpert Lisa Sweet höfundur bókarinnar 365 Sex Thrills segir að það að beygja sig fram, setja hendurnar á flötinn fyrir framan þig og þrýsta rassinum vel upp í loft (getur hugsað þetta eins og “downward-facing dog” í jóga). Svo á karlmaðurinn að standa fyrir aftan þig með fætur í sundur og hendur á mjöðmunum á þér. Þegar hann er svo komin inn í þig þá átt þú að ráða ferðinni með því að lyfta þér upp og niður og þrýsta rassinum að honum. Og mundu þú stjórnar.  Þessi stelling örvar G-blettin vel og ef karlmaðurinn vill gera þetta meira hot að þá rennir hann höndunum framan á þig og nuddar snípinn.

Kynlíf strax eftir ræktina

Kynlíf er afar gott strax eftir ræktina. Rannsókn í The Journal of Sexual Medicine segir að konur fái um 150% meiri örvun eftir 20 mínútna brennslu, en þessi örvun hverfur eftir um hálftíma. Svo, drífa sig beint í sturtu og heim og nýta þessa miklu örvun í heitt kynlíf.

Horfið á erótík sem örvar ykkur bæði

Hættið sjónvarpsglápi og smellið frekar í gang erótískri mynd sem æsir ykkur bæði upp. Rannsóknir sýna að karlmenn vilji frekar horfa á klámmyndir á meðan konur vilji myndir sem eru erótískar en sýna ekkert of mikið. Prufið að horfa á Intimate Encounters, Blue Valentine, Wild Orchid eða 9 and a half week.

Prufið að nota besta kynlífsleikfang sem hefur verið framleitt

Það þarf pláss í náttborðsskúffunni. The Zuma Vibe er framleitt af Icon Brands er víbrator sem hefur tvo mótora og örvar bæði snípinn og G-blettinn í einu. Og það sem meira er, efnið í þessari græji hitnar með þínum líkamshita.

Útilokaðu allt

Að gera það einhverstaðar þar sem einhver gæti séð? Úti á svölum, tekið einn stuttan í Elliaárdalnum... Til að fá enn meiri spennu í kynlífið, prufað þetta: að binda fyrir augun á honum á meðan þú ert að gæla við hann og öfugt. Að sjá ekki hvað verið er að gera eykur unaðinn og þú verður næmari á allt annað.

Gerðu lista yfir allar kynlífsstellingar og fantasíur sem þú vilt prufa

Hefur þig ekki stundum langað að geta skriðið inn í hausinn á elskhuganum til að vita hvað hann er að hugsa...hvort hann sé til í það sem þú ert að hugsa ? setist saman og hafið það kósý með glas af víni, blað og penna. Gerið núna lista yfir allar þær kynlífsstellingar og fantasíur sem þið hafið. Skiptist svo á listum og lesið hvors annars. Þarna eru þið komin inn í fantasíuheim hins aðilans og þá er svo auðvelt að láta þær rætast... FANTASÍURNAR.

Heimildir: womenshealthmag.com

Könnun

Hvaða hreyfingu stundar þú?