| Mt. Esja Ultra er alvöru fjallahlaup sem haldið verður í annað skiptið 22. júní 2013. Það er mikið lagt í umgjörð
mótsins til að tryggja að hlaupurum líði vel og nái sínum markmiðum. Vegalengdir í boði 
I Einn hringur: Vegalengd 7 km, hækkun 600m - 2.500 krII Tveir hringir: Vegalengd 14 km, hækkun 1200m - 2.500 krV Fimm hringir: Vegalengd 35 km, hækkun 3000m - 5.000 krXtreme 10 hringir: Vegalengd 70 km, hækkun 6000m - 10.000 kr Vegleg verðlaun verða veitt fyrstu þremur körlum og konum í ölllum vegalengdum. StaðsetningHlaupið verður ræst frá Esjustofu á mismunandi tímum (sjá rástíma hér að
neðan). Keppendur skulu mæta tímalega og þeir sem keppa í V og X þurfa að skrá sig sérstaklega hjá hlaupastjóra.
 Rástímar 
Kl. 5:00 fyrir XtremeKl. 10:00 fyrir V ferðirKl. 13:00 fyrir 2 ferðirKl. 15:00 fyrir 1 ferð SkráningSkráning fer fram hér á hlaup.is.
Skráningartímabil eru eftirfarandi:
 
Til 24:00 þann 18.6 fyrir 5 og 10 ferðirTil 20:00 þann 21.6 fyrir 1 og 2 ferðir Hægt verður að skrá sig á staðnum en þá er 500 kr. hærra verð í styttri vegalengdir (1 og 2 ferðir) og 2.000
kr hærra verð fyrir lengri (5 og 10 ferðir) Innifalið í skráningargjaldi 
Verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í öllum vegalengdum, í karla og kvennaflokki.Verðlaunapeningur fyrir alla þá sem klára innan tímamarka.Sérstök verðlaun fyrir þá sem klára Mt.Esja Ultra X innan tímamarka.Sérstök verðlaun fyrir þá sem klára Mt.Esja Ultra V innan 6 klst.Tímataka og númerVatn, íþróttadrykkir og matur á drykkjarstöðHeit súpa og brauð fyrir keppendur sem hlaupa 5 og 10 hringi BolirÍ skráningarferlinu verður hægt er að kaupa boli í kvenna og karlasniði, s-m-l-xl. Verð á
bolunum er 3.990 kr.
 Afhending keppnisgagnaAfhending keppnisgagna verður 21. júní í TRÍ Suðurlandsbraut 22.
 Nánari upplýsingarVefsíða hlaupsins: http://www.mtesjaultra.is
 Kort af hlaupaleiðinni:  
 Þversnið af hlaupaleiðinni:   REGLUR OG ÚTBÚNAÐURVerið góð og þakklát við alla sjálfboðaliða sem á vegi ykkar verða
 Keppnisstjóri mælir sterklega með því að hver keppandi hafi eftirfarandi útbúnað til taks (skyldubúnaður fyrir keppendur í 5
og 10 hringjum): 
Plastmál til að sækja vatn í læk og á drykkjarstöðÁlteppiFarsímaNægilegt magn af næringu og vökva (0,5-1,0 L) fyrir hvern hringTeygjubindiVatnsheldan jakka úr öndunarefniHúfu og hanska Mælt er með að hafa meðferðis: 
GöngustafiDrykkjarbelti eða vatnspokaSúrefnissokkaDerhúfuSólglerauguSólarvörnNúningsáburð og blöðruplástra Heimilt verður að geyma aukabúnað  á sérstöku svæði við Esjustofu. Keppendur mega fá aðstoð frá einum
utanaðkomandi aðila á svæðinu. Það er mikilvægt að keppendur skipuleggi næringu, útbúnað, klæðnað og aðstoð
vel fyrir keppni. Hlauparar þurfa að hafa meðferðis eigin næringu sem dugar út allt hlaupið. REGLUR Keppendur skuldbinda sig til að: 
Stunda viðeigandi þjálfun til að ljúka keppni innan tímamarka.Stunda heiðarlega keppni og fylgja settri leið skipuleggjenda.Bera virðingu fyrir náttúrunni og henda engu rusli á leiðinni nema við Esjustofu.Klæða sig eftir veðri og veðurspá.Hafa með sér nægja næringu og vökva til að klára keppni.Virða reglur um utanaðkomandi aðstoð en aðeins einn einstaklingur má aðstoða hvern keppanda hverju sinni með búnað og næringu á
sérstöku svæði við Esjustofu. Öll önnur utanaðkomandi aðstoð er bönnuð nema í neyð.Sýna öðrum keppendum og göngufólki tillitsemi á leiðinni.Hafa keppnisnúmer sýnilegt allan tímann .Skrá sig hjá starfsmanni við Stein (checkpoint) og Esjustofu í hverjum hring.Keppendum ber að aðstoða aðra keppendur í neyð þar til önnur viðeigandi hjálp berstKeppnisstjóri ber ekki ábyrgð á hlaupurum vegna utanaðkomandi áhrifa eins og veðurs og náttúruhamfaraKeppendur eru á eigin ábyrgð í keppninni en eru hvattir til að leita viðeigandi aðstoðar ef um slys eða veikindi er að ræða.Keppnisstjóri getur vísað öllum frá keppni sem fylgja ekki settum reglumKeppnisstjóra er heimilt að aflýsa eða stoppa hlaupið vegna utanaðkomandi aðstæðna |