Krukkusalat
					Hér er hugmynd að einföldu salati sem hægt er að gera kvöldinu áður og geyma í kæli.  Hér er málið að leyfa hugmyndafluginu að njóta sín.  Aðalatriðið er að hafa sósu, fræ o.þ.h. neðst og salatið efst.  Því þegar þú hellir úr krukkunni á disk þá endar salatið neðst - svona eins og við viljum hafa það.
				
										 
													
								Krukkusalat
							
											Dæmi um salat – raðað í krukkuna í þessari röð:
- Fræ
- Gojiber
- Alfa-alfa spírur
- Rauðlaukur
- Ólífur
- Kirsuberjatómatar
- Agúrka
- Mangó
- Paprika
- Avókadó
- Egg
- Rucolla salat
Geymt í kæli og jafnvel yfir nótt.
Njótið!
Heilsukveðja,
Ásthildur Björns 
