Fara í efni

Máttur vanans er mikill! – Hverju viltu breyta?

Leiðin að styrkari líkama og heilbrigðara lífi felur í sér að þú verður að hyggja að matarvenjum þínum, draga úr neyslu hitaeininga og hreyfa þig meira. Þetta eru tæplega ný tíðindi fyrir þig ef þú ert of þung/ur. Lífið er fullt af gildrum og ef þú ætlar að ná markmiði þínu verðurðu að breyta daglegum venjum.
Máttur vanans er mikill! – Hverju viltu breyta?

Leiðin að styrkari líkama og heilbrigðara lífi felur í sér að þú verður að hyggja að matarvenjum þínum, draga úr neyslu hitaeininga og hreyfa þig meira. 

Þetta eru tæplega ný tíðindi fyrir þig ef þú ert of þung/ur. Lífið er fullt af gildrum og ef þú ætlar að ná markmiði þínu verðurðu að breyta daglegum venjum.

Til þess að breyta þarftu að vita hverju þú vilt breyta.  Þú þarft að gera þér grein fyrir því hvernig þitt mynstur er.  Hvar getur þú breytt?  Hverju er auðveldast að breyta?  Settu þér raunhæf markmið, það er ekki vænlegt til árangurs að kúvenda öllu.    Góðir hlutir gerast hægt

Hreyfing er eitt af því allra mikilvægasta sem við gerum á hverjum einasta degi.  Það er nauðsynlegt fyrir alla að hreyfa sig.  Á hverjum degi fáum við fullt af tækifærum til að hreyfa okkur.

Hreyfing þarf ekki alltaf að vera skipulögð, eða í einhverju sérstöku samhengi eða við sérstakar aðstæður.

Það er mikið talað um að fara í átak í þessu eða hinu.  Námskeið í líkamsrækt getur auðvitað verið mjög gott, en það sem þarf til lengri tíma er hugarfarsbreyting.  Við fáum ótal tækifæri til að hreyfa okkur, án þess að utan um það þurfi að vera einhverjar sérstakar umbúðir.

Nýtum þau tækifæri sem gefast:

  • Þegar við leggjum bílnum okkar fyrir utan vinnuna eða verslun, er svo lítið mál að leggja aðeins lengra frá og fá smá göngutúr í leiðinni.
  • Við getum valið að ganga eða hjóla í vinnuna á hverjum degi, eða bara á góðviðrisdögum.
  • Ef við þurfum að fara upp nokkrar hæðir, getum við valið að ganga stigana í stað þess að taka lyftuna.  Við getum meira að segja byrjað á því að ganga alltaf bara eina eða tvær hæðir og taka svo lyftuna.
  • Við getum farið sér ferð út með ruslið.  Ekki bíða eftir því að einhver annar eigi leið framhjá.
  • Göngum út í búð ef okkur vantar eitthvað smáræði, ekki keyra.
  • Svo má alltaf fá sér hund.  Hundur þarf göngutúr á hverjum degi, ekki síður en við sjálf.  En þó þú eigir ekki hund þá er samt sem áður gott að fara í lengri og skemmri göngutúra.
  • Sért þú í kyrrsetustarfi er gott að standa upp á hverjum klukkutíma og ná í ½ glas af vatni eða fara á klósettið, hreyfa sig aðeins.
  • Í hádeginu er svo um að gera að fara í göngutúr og fá sér að snæða í leiðinni.  Ef þú tekur með þér nesti, þá gætir þú samt fengið þér göngutúr og keypt t.d. einn banana, vatn eða eitthvað annað lítið með.  Fá smá hreyfingu, ekki velja auðveldustu leiðina.

Settu þér ákveðið markmið sem mögulegt er fyrir þig að ná.  Hreyfing getur verið fólgin í heimilisstörfum, garðvinnu, hjólreiðum, sundi, leikfimi, þrekþjálfun, golfi eða hópíþróttum.

Mannslíkamanum má líkja við vél.  Það er nauðsynlegt að smyrja hana og hreyfa hana, annars ryðgar hún og stirðnar.  Nú fer vorið að koma og tíminn framundan góður til útiveru og göngutúra. Hreyfum okkur því á hverjum degi.

Grein af vef doktor.is