Fara í efni

Geturðu passað í kvöld?

Það er ekki mikið um nýjar kannanir sem varða líf og starf eldra fólks í landinu. En við hjá Lifðu núna höfðum gaman af að glugga í þessa gömlu rannsókn á því hversu mikið afar og ömmur gæta barnabarnanna.
Geturðu passað í kvöld?

Það er ekki mikið um nýjar kannanir sem varða líf og starf eldra fólks í landinu. En við hjá Lifðu núna höfðum gaman af að glugga í þessa gömlu rannsókn á því hversu mikið afar og ömmur gæta barnabarnanna.

Það voru Ingibjörg H. Harðardóttir lektor í sálfræði og Amalía Björnsdóttir dósent í aðferðafræði sem gerðu hana árið 2006. Rætt var við 21 eldri borgara í könnuninni og fram kom að um 62% af öfum og ömmum taka þátt í að gæta barnabarnanna, en tæplega 40% sögðust aldrei passa. Erlendar rannsóknir sýna að afa og ömmu hlutverkið er að flestra dómi eitt það mikilvægasta í lífinu þegar árin færast yfir og afar gefandi. Það er ótrúlegt að því sé öðruvísi farið hér á landi. En gefum öfum og ömmum í rannsókninni orðið.

Ég hef alltaf verið að sinna svolítið barnabörnum og m.a.s. langömmubörnum svo ég gríp ennþá inn í það, mætti segja mér að það væri tvisvar í viku sem ég sæki barn á leikskólann og hef hann þangað til mamman kemur heim og er að passa langömmubörn á meðan mamma er að reyna að læra. Ég gríp alltaf eitthvað í það.

Eldri börnin sem eru orðin meira sjálfbjarga koma oft við á skólatíma ef afi og amma búa nálægt: „Það er meira á matartímum. Stundum ef það eru göt hjá þeim þá koma þeir.

Afar og ömmur í rannsókninni segjast einnig hjálpa barnabörnunum við námið;

Elsta langömmubarnið er núna orðið 14–15 ára. Og hann býr nú reyndar í Danmörku en þegar hann kemur þá kemur hann hingað. Eins var hann í skóla hér í hálft ár og þá kom hann reglulega einu sinni til tvisvar í viku og ég hjálpaði honum með íslenskuna sem hann var að gera í skólanum. En það var ósköp ljúft að fylgjast með honum.

Enn aðrir eru virkir í að fylgjast með íþróttastarfi ungu kynslóðarinnar;

Ég mæti á flest alla leiki sem að hér eru og öll íþróttamót og reyni alltaf að hjálpa til í undirbúningi að mótum og öðru, þegar þau standa, og ég tel ekki eftir mér að vinna í sjálfboðavinnu að vinna við það. Ég held að það sé mikið forvarnarstarf unnið þar og tel að það sé öllum hollt að vinna í slíku starfi.

Í sumum fjölskyldum eldri borgara eru, eins og í öðrum fjölskyldum, viðfangsefni sem kalla á sértækan stuðning og það er ljóst af viðtölunum í rannsókninni að þar leggur þessi hópur sitt af mörkum gagnvart börnum og . . . LESA MEIRA