Fara í efni

Faðmlög góð fyrir hjartað

Sá sem faðmaði aðra manneskju fyrst hefur sjálfsagt fundið fyrir einhverju alveg sérstöku og allar götur síðan hefur faðmlag haft áhrif á mörg hjörtu. Faðmlög eru áhrifarík og því er við hæfi að minna sem flesta á að með faðmlagi ertu dreifa einstaklega fallegum og góðum boðskap.
Föðmumst
Föðmumst

Sá sem faðmaði aðra manneskju fyrst hefur sjálfsagt fundið fyrir einhverju alveg sérstöku og allar götur síðan hefur faðmlag haft áhrif á mörg hjörtu.

Faðmlög eru áhrifarík og því er við hæfi að minna sem flesta á að með faðmlagi ertu dreifa einstaklega fallegum og góðum boðskap. 

Faðmlög eru mjög jákvæð leið til samskipta. Það sýnir hvernig við metum ástina, sýnum velþóknun, þakklæti, gleði, væntumþykju, fyrirgefningu og tjáum ást okkar. 

Faðmlög eru frábær leið til að sýna tilfinningalega fullnægju, en faðmlög bæta líka hjartaheilsu.

Faðmlög geta verið góð fyrir heilsuna á margan hátt og sumt gæti komið þér á óvart eða eitthvað sem þú hafðir ekki leitt hugann að.

Hvað gera faðmlög fyrir okkur?

1. Faðmlög minnka hættuna á hjarta og æðasjúkdómum.

Hár blóðþrýstingur er einn af áhættuþáttum hjarta og æðasjúkdóma. Rannsóknir hafa sýnt að faðmlög lækka blóðþrýsting og minnka þar með hættuna á hjarta og æðasjúkdómum. Fyrir fólk með veik hjörtu og háan blóðþrýsting er þetta sennilega mesti heilsufarslegi ávinningur faðmlaga.

2. Faðmlög losa um streitu og róa þig.

Nokkrar rannsóknir hafa sýnt að faðmlög gera þig hamingjusamari (kemur á óvart, eða hvað?). Faðmlög auka framleiðslu oxytocin. Þetta hormón leysir úr læðingi tengsla og umhyggju viðbrögð og þetta hormón hjálpar þér að slaka á og losna við kvíða sem er hvorutveggja gott fyrir hjartaheilsu þína.

3. Faðmlög eru góð fyrir sambandið.

Þegar þú hugsar um það er það nokkuð augljóst. En veistu af hverju faðmlög eru góð fyrir sambandið? Faðmlög losa um hormónin seratonín og dopamín. Þessi hormón sjá til þess að þér líði vel og koma þér í gott skap.
Niðurstaðan er sú að þér finnst þú standa þeirri manneskju nær sem lætur þér líða betur. Gott samband hefur auk þess góð áhrif á heilsu í heild sinni, þar með talið hjartaheilsu.

Þetta eru þau topp þrjú atriði um kosti þess að faðmast sem ætti að hvetja þig til meiri faðmlaga, auk þess stuðla faðmlög að langlífi, sterkara ónæmiskerfi og hærra sjálfsmati.

Faðmlög eru því góð leið til meiri lífsgæða.

Heimild. hjartalif.is