Fara í efni

Listeria í sveppum

Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá Innnes ehf. um innköllun. Um er að ræða eina lotu af sveppum sem er innkölluð vegna gruns um listeríu (Listeria monocytogenes).
Listeria í sveppum

Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá Innnes ehf. um innköllun.

Um er að ræða eina lotu af sveppum sem er innkölluð vegna gruns um listeríu (Listeria monocytogenes).

  • Vörumerki: Banken 
  • Vöruheiti: Enoki mushroom 
  • Lýsing á vöru: Hvítir grannir enoki sveppir 
  • Framleiðandi: Green Co .,Ltd 95 Hakasan Igli Cheongdo- gun, Gyeongbuk-do, KOREA 
  • Innflytjandi: Innnes ehf, Fossaleyni 12, 112 Reykjavík
  • Framleiðsluland Korea 
  • Lotanúmer: Lot L22 
  • Strikanúmer: 8713021310103 
  • Geymsluskilyrði (kælivara/frystivara): Kælivara 
  • Ástæða innköllunar: Listeria monocytogenes 

Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og skila vörunni til fyrirtækisins eða í viðkomandi verslun.

Listeria monocytogenes getur orsakað sjúkdóm bæði hjá mönnum og dýrum og kallast þessi sjúkdómur listeriosis. Einkenni sjúkdómsins eru mild flensueinkenni, vöðvaverkir, hiti og stundum ógleði og niðurgangur. Alvarlegri einkenni eru heilahimnubólga í ungbörnum, blóðeitrun og getur sjúkdómurinn einnig valdið fósturláti. Í einstaka tilfellum getur bakterían valdið dauða, þá er yfirleitt um að ræða einstaklinga sem eru með skert ónæmiskerfi.

Í flestum heilbrigðum einstaklingum veldur neysla á listeríumenguðum matvælum ekki sjúkdómi. Áhættuhópar eru barnshafandi konur, ófædd og nýfædd börn og einstaklingar með skert ónæmiskerfi. Hópsýkingar af völdum listeríu eru mjög sjaldgæfar, oftast er um að ræða einstaklingssýkingar.

 

Ítarefni