Fullt nafn: Katrín Júlíusdóttir
Aldur: 38 ára
Starf: Alþingismaður
Maki: Bjarni Bjarnason
Börn: Eigum samanlagt fjóra stráka á aldrinum 15 mánaða – 14 ára. 
Hvað dettur þér fyrst í hug þegar þú heyrir orðið „járnkarl“ 
Sund, hlaup og hjól. Blóð, sviti og tár! 
Nefndu þrennt sem þú átt alltaf til í ísskápnum 
Smjörvi og mjólk fyrir strákana, soyjamjólk fyrir mig.
Hvaða töfralausn trúir þú á? 
Svefn, vatn og hreyfingu. 
Ef þú værir staddur/stödd á eyðieyju hvað myndir þú ekki vilja vera án 
Vatns, ástar og gleði! 
Hver er þinn uppáhaldsmatur? 
Fylltar paprikur á la Solla Eiríks og steiktur lax. 
 
Hvort borðar þú brúnan eða hvítan sykur ? 
Bæði en stundum sleppi ég alveg þeim hvíta í skemmri tíma. 
Hvað æfir þú oft í viku 
Misjafnt. Þessar vikurnar c.a. 4 sinnum. 
Ef þú ætlar að „tríta“ þig sérlega vel hvað gerir þú ? Fæ mér sushi 
Hvað er erfið æfing í þínum huga ? 
Góð brennsla og þung lóð. Vel tekið á því. 
Hvað segir þú við sjálfan/sjálfa þig þegar þú þarft að takast á við stórt/erfitt verkefni ? 
Jæja, best að byrja! 
Þegar þú liggur andvaka, hvað hugsar þú um ? Ég leyfi mér að dreyma um ferðalög á framandi slóðir eða árangur sem ég vil ná í framtíðinni. Ég er mjög dagdreyminJ 
Hvernig líta „kósífötin“ þín út ? 
Ég á stóra skúffu af kósífötum. Gamaldags hneppt náttföt, leggings og kínverskir náttserkir mmmmm! 
Þegar þú færð þér skyndibita hvað færð þú þér oftast ? 
Allsskonar, oftast sushi eða núðlusúpur