Fara í efni

Hjartadagshlaupið - Við eigum aðeins eitt hjarta, höldum því hraustu !

Hjartadagshlaupið fer fram laugardaginn 12. september 2026, við tökum daginn snemma og ræsum kl. 10:00 en Hjartavernd stendur fyrir viðburðinum https://hjarta.is/ en einkunnarorð hlaupsins eru „Við eigum aðeins eitt hjarta, höldum því hraustu“
Þátttakendur eru hvattir til að klæðast rauðu
Þátttakendur eru hvattir til að klæðast rauðu

Markmiðið með Hjartadagshlaupinu að fagna Alþjóðlegum hjartadegi sem haldinn er í yfir 120 löndum á hverju ári. Markmiðið með Hjartadeginum er að vekja athygli á hjartaheilsu, og auka vitund og þekkingu almennings á ógnum hjarta- og æðasjúkdóma.

Mikilvægt vopn í baráttunni við þessa sjúkdóma eru heilbrigðir lífshætti þar með talið hreyfing og mataræði svo að börn, unglingar og fullorðnir um allan heim öðlist betra og lengra líf. Hreyfing og samvera er auk þess góð fyrir almenna heilsu og vellíðan.

Vegalengdir og hlaupaleið
Í boði eru tvær tímamældar vegalengdir, 5 km og 10 km. Ræst er kl. 10:00 í báðar vegalengdir inn á Kópavogsvelli og er fyrst hlaupinn hálfur hringur inni á vellinum en þaðan eins og leið liggur út á Kársnes og þaðan til baka í mark inn á Kópavogsvöll. Snúningspunktur fyrir 5 km er á göngustígnum á Kársnesinu en fyrir 10 km þá er göngustígurinn hlaupinn inn í enda Fossvogs og þar snúið við. Drykkjarstöð verður á miðri hlaupaleið eftir 5 km og við endamark. Hlaupið er vottað götuhlaup af Frjálsíþróttasambandi Íslands og úrslit því skráð í afrekaskrá fyrir þá sem óska þess.

Salernisaðstaða er inni í stúku á Kópavogsvelli og er merkt. Góð aðstaða er til upphitunar í kringum völlinn.

Verðlaun
Verðlaun eru veitt fyrir þrjú efstu sæti karla og kvenna í báðum flokkum og börn 12 ára og yngri sem taka þátt fá öll viðurkenningu. Verðlaunaafhending fer fram strax að hlaupi loknu.

Skráning og þátttökugjald

Skráning í hlaupið fer fram á https://netskraning.is/hjartadagshlaupid/ og lýkur á miðnætti 10. sept. Einungis 400 númer verða í boði.

  • 10 km hlaup kostar 5.000 kr
  • 5 km hlaup kostar 3.000 kr
  • Börn 15 ára og yngri greiða ekki gjald

 

Hlaupagögn verða afhent í versluninni Hlaupár í Fákafeni 11, vikuna 7. - 11. september á opnunartíma klukkan 11 til 18

ÞÁTTTAKENDUR ERU HVATTIR TIL AÐ KLÆÐAST RAUÐU.


Nánari upplýsingar

Rannveig Ásgeirsdóttir verkefnastjóri
rannveig@hjartamidstodin.is