Hið árlega Brúarhlaup á Selfossi fer fram laugardaginn 9. ágúst 2025. Hlaupið hentar fyrir alla fjölskylduna, allt frá reyndu hlaupurunum sem vilja hlaupa gott 10 km eða 5 km hlaup og niður í yngri hlaupara sem eru að stíga sín fyrstu skref í hlaupunum en þeir hafa val um 3 km eða 800m skemmtihlaup.
Vegalengdir
Hlaupavegalengdir eru 10 km, 5 km, 3 km skemmtiskokk ásamt 800 m Sprotahlaupi fyrir börn 8 ára og yngri. 10 km og 5 km hlaupaleiðirnar eru löggildar og mældar upp af viðurkenndum aðila. Flögutímataka er í 3 km, 5 km og 10 km og munu úrslit birtast á www.timataka.is strax að loknu hlaupi. 5 km og 10 km vegalengdirnar eru viðurkenndar og vottaðar af Frjálsíþróttasambandi Íslands og færist árangur því inn í afrekaskrá sambandins.
Einnig fer fram keppni í 5 km hjólreiðum sem frekar má líta á sem skemmtihjólreiðar, þar sem brautin er ekki hröð keppnisbraut.
Tímasetningar og staðsetning rásmarks
Allir þátttakendur koma í mark í Sigtúnsgarðinum í miðbæ Selfoss.
Flokkaskipting og verðlaun
Flokkaskipting er í 5 km og 10 km hlaupi og eru veittir verðlaunapeningar fyrir 1. - 3. sæti í hverjum aldursflokki og einnig fyrir 1. - 3. sæti óháð aldri, karla og kvenna, í hvorri vegalengd.
Verðlaunapeningar eru veittir fyrir 1. - 3. sæti í 3 km hlaupi og 5 km hjólreiðum, í karla- og kvennaflokki.
Að auki verða dregin út útdráttarverðlaun, úr hópi keppenda og þeim heppnu afhent þau um leið og þeir koma í mark. Verðlaunaafhending fer fram í miðbæjargarði Selfoss, við endamark hlaupsins, kl. 13:00.
Skráning og verð
Skráning fer fram á https://hlaup.is/vidburdir/bruarhlaupid-a-selfossi-09-08-2025/ en forskráningu lýkur á netinu, föstudaginn 8. ágúst kl. 16. Hægt verður að skrá sigi á hlaupdegi frá kl. 9:00 í Landsbankanum á Selfossi.
Skráningargjöld í forskráningu:
Veittur er fjölskylduafsláttur þannig að hjón borga fullt gjald, fyrir sig og tvö börn 15 ára og yngri, en ef um fleiri börn er að ræða fá þau frítt. Alla fjölskyldumeðlimi verður að skrá á sama tíma og nota viðeigandi afsláttarkóða.
Eftirfarandi afsláttarkóðar eru notaðir fyrir fjölskylduskráningu hér á hlaup.is:
Skráningargjöld eftir að forskráningu lýkur
Þeir sem ekki vilja fá bol merktan hlaupinu geta afþakkað hann í forskráningu og lækkar þá keppnisgjaldið um 500 kr. Í Sprotahlaupinu eru bolir merktir Sprota og fá allir þátttakendur þar bol. Ekki er hægt að afþakka bol í því hlaupi gegn lækkun keppnisgjalds eða ef þú vilt nýta þér fjölskylduafsláttinn.
Afhending keppnisgagna, er á hlaupdegi í Landsbankanum á Selfossi, frá kl. 09:00. Allir þátttakendur fá við skráningu keppnisbol en verðlaunapening við komu í mark.
Annað
Eftir hlaup stendur öllum þátttakendum til boða að fara frítt í sund í boði sveitarfélagsins Árborgar, gegn framvísun keppnisnúmers. Úrslit verða birt á hlaup.is og timataka.is Frekari upplýsingar gefur Helgi Sigurður Haraldsson, helgihar@simnet.is og í síma 780-0403.
Skilmálar hlaupsins
Með því að senda inn skráningu í Brúarhlaupið leysi ég framkvæmdaraðila hlaupsins undan allri ábyrgð á tjóni, meiðslum eða veikindum sem ég, eða sá sem ég er að skrá, gæti orðið fyrir í hlaupinu/hjólreiðunum. Ég staðfesti einnig að ég er bæði andlega og líkamlega fær um að ljúka viðkomandi vegalengd sem ég skrái mig í.