Hið árlega Brúarhlaup á Selfossi er fjölskylduvænn hlaupa- og hjólaviðburður sem hentar jafnt byrjendum sem keppnisfólki. 5 km og 10 km hlaupin eru viðurkennd og vottuð af Frjálsíþróttasambandi Íslands og því tilvalið að bæta sinn besta tíma þar og fá það viðurkennt í afrekaskrá.
Vegalengdir sem boðið er upp á:
Rásmark í 10 km, 5 km og hjólreiðar er á Árvegi á Selfossi. Rásmark 3 km og Sprotahlaups er í Miðbæjargarðinum. Allar vegalengdir enda í Sigtúnsgarðinum í miðbæ Selfoss.
Ræsingar
Þátttökugjald
Skráning
https://netskraning.is/bruarhlaupid/
Verðlaun
Veittir eru verðlaunapeningar fyrir efstu þrjú sæti í aldursflokkum og í heildarkeppni karla og kvenna í 5 km og 10 km. Einnig eru veitt verðlaun í 3 km hlaupi og 5 km hjólreiðum, auk útdráttarverðlauna meðal þátttakenda. Verðlaunaafhending fer fram kl. 13:00 í Miðbæjargarðinum.
Aðrar upplýsingar
Allir þátttakendur fá frítt í sund að hlaupi loknu gegn framvísun keppnisnúmers, í boði Sveitarfélagsins Árborgar.
https://www.facebook.com/Bruarhlaupselfoss/
Nánari upplýsingar frjalsar@umfs.is