Fara í efni

Víðavangshlaup Saucony og Framfara 2013

Hlaupin eru fjögur og með sama sniði og undanfarin ár, hefjast kl. 11:00 á laugardagsmorgnum í október og nóvember.
Saucony skólinan hentar flestum.
Saucony skólinan hentar flestum.

Saucony á Íslandi kynnir 10. Víðavangshlauparöð Framfara.

Hlaupin eru fjögur og með sama sniði og undanfarin ár, hefjast kl. 11:00 á laugardagsmorgnum í október og nóvember.

Um tvær vegalengdir er að ræða, “stutt” og “langt” hlaup, og hefst styttra hlaupið á undan. Stutta hlaupið er yfirleitt um 700-800m og það langa 4-7.5km.

Keppnisgjald er 500kr en ókeypis fyrir börn undir 12 ára aldri.   

Eftirfarandi eru staðsetningar og dagsetningar:

  1. 5.október við Elliðavatnsbæ
  2. 12.október við Reynisvatn
  3. 19.október við Borgarspítala
  4. 2.nóvember á Tjaldstæðinu í Laugardal

Stigakeppni er í flokkum karla og kvenna og veitt eru verðlaun fyrir fyrstu þrjá einstaklinga í stigakeppninni að hlaupunum loknum. Þáttakendur mega og eru hvattir til að taka þátt í báðum hlaupum á sama degi.  Bæði hlaup á gefnum degi gilda til stiga einstaklings í stigakeppninni en aðeins þrír bestu keppnisdagar gilda í lokin. Þannig er óhætt að forfallast í einu hlaupi.

Hlaup 1, Elliðavatnsbær, 5.október: 

Hringurinn er 1km að lengd og alfarið á malarstígum. Ein brött brekka, annars tiltölulega flatt. Ekki er mælt með að hlaupa á gaddaskóm.

Hlaupinn er 1 hringur (1km) í stutta hlaupinu en 4 (4km) í því langa.  

Bílastæði eru við Elliðavatnsbæ. 

Hlaup 2 – Reynisvatn – 12.október

Hringurinn er um 1300m að lengd, á malarstíg í kringum vatnið. Hægt er að hlaupa á gaddaskóm, mögulega betra að vera á utanvegaskóm eða flötum. Hlaupinn er 1 hringur (1.3km) í stutta hlaupinu en 4 (5.2km) í því langa. Bílastæði eru við veiðihúsið. 

Hlaup 3, Borgarspítali, 19.október

Hringurinn er 1km að lengd, tæknilegur, hæðóttur og á köflum mýrlendur. Hægt er að hlaupa í gaddaskóm. Hlaupinn er 1 hringur (1km) í stutta hlaupinu en 6 (6km) í því langa.

Bílastæði eru við spítalann.

Hlaup 4 – Tjaldstæði og þvottalaugar í Laugardal – 2.nóvember

Hringurinn er 1.5km að lengd, tæknilegur og með nokkurri hækkun. Hlaupið er á grasi (mestmegnis) og möl. Mælt er með að hlaupa á gaddaskóm. Hlaupinn er 1 hringur (1.5km) í stutta hlaupinu en 5 hringir (7.5km) í því langa.

Bílastæði við Farfuglaheimilið eða Skautahöllina í Laugardal. Rásmark er inni á tjaldstæðinu.

Síðasta hlaupið gegnir jafnframt hlutverki brautarprufu og síðasta úrtökumóts fyrir Norðurlandamótið í Víðavangshlaupum sem fer fram á sama stað 9.nóvember.

Saucony hlaupaskórnir fást í Afreksvörum , Álfheimum 74 , Simi 533 1020 - Hjá honum Danna okkar sem veit allt um skó og aukahluti sem til þarf til hlaups.  Heimasíða www.afrek.is