Fara í efni

Tölvu- og skjánotkun barna og unglinga: Taktu stjórnina!

Tölvu- og skjánotkun barna og unglinga: Taktu stjórnina!

Þitt virði býður upp á námskeið fyrir foreldra um tölvu- og skjánotkun barna og unglinga. Námskeiðið er sniðið að foreldrum barna á öllum aldursstigum sem og öðrum sem koma að málefnum barna.

Markmið þess er að þeir fullorðnu öðlist færni til og fái verkfæri til þess að sporna gegn óhóflegri tölvu- og skjánotkun ungmenna sem og að draga úr henni. Jafnframt er bent á leiðir sem stuðla að því að fá börnin njóti sín betur og styrkist í sjálfum sér.

Efnistökum námskeiðsins má skipta í þrennt:

1. Umfjöllun um tölvuleiki og samfélagsmiðla, hugmyndafræði og uppbyggingu þeirra, áhrif þeirra á ungmenni og einkenni og afleiðingar ofnotkunar.

2. Foreldrum gefst kostur á að taka próf til að fá yfirsýn á hvaða stað barnið þeirra er varðandi tölvu- og skjánotkun.

3. Aðgerðaráætlun er sett fram. Foreldrar fá ýmis verkfæri til að stuðla að hóflegri tölvu- og skjánotkun hjá börnunum sínum. Haft er í huga að það er misjafnt hvaða aðferð hentar hverju barni.

Fyrirlesarar námskeiðsins eru Guðrún Katrín Jóhannesdóttir, félagsfræðingur og Lovísa María Emilsdóttir, félagsráðgjafi.

Hvar?

Icelandair hótel Reykjavík Marina

Mýrargötu 2-8

101 Reykjavík

Hvenær?

6. desember

Klukkan?

18-20

Verð?

7.900 kr.

Skráning:

Á netfang: thittvirdi@thittvirdi.is

Guðrún í síma 7782225

Lovísa í síma 8619996

Einnig er hægt að fylla út formið hér að neðan til að skrá sig.