Fara í efni

Stærsti spinningtími ársins fer fram um helgina

isastóri spinningtími World Class og Bleiku slaufunnar fer fram á sunnudaginn en um er að ræða risastóran spinningtíma sem þar sem öllum hjólum líkamsræktarstöðvarinnar World Class verður komið fyrir í Fylkisheimilinu en þau eru 350 talsins.
Stærsti spinningtími ársins fer fram um helgina

Risastóri spinningtími World Class og Bleiku slaufunnar fer fram á sunnudaginn.

Um er að ræða risastóran spinningtíma sem þar sem öllum hjólum líkamsræktarstöðvarinnar verður komið fyrir í Fylkisheimilinu, en þau eru 350 talsins.

Tíminn er opinn öllum og verður hægt að mæta klukkan 10,11 og 12 og kostar tvö þúsund krónur inn fyrir hvern tíma.

Það verður því hægt að skrá sig í alla þrjá, en hver spinningtími verður 45 mínútur og rennur allur ágóði til Bleiku slaufunnar.

Tíminn er ætlaður öllum, bæði vönum spinnurum og einnig fyrir þá sem aldrei hafa mætt áður.

Sjá nánar á vef betri frétta