Fara í efni

NÁMSKEIÐ Í KÓPAVOGI OG Á AKUREYRI - HVERNIG Á AÐ MATREIÐA OFNÆMISFÆÐI Á ÖRUGGAN HÁTT?

Námskeið 13. og 28. nóvember á Akureyri

HVERNIG Á AÐ MATREIÐA OFNÆMISFÆÐI  Á ÖRUGGAN HÁTT?

Astma- og ofnæmisfélag Íslands (AO) heldur sitt vinsæla „námskeið um eldun ofnæmisfæðis“ þriðjudaginn 13. nóvember og miðvikudaginn 28. nóvember í Giljaskóla  á Akureyri.

Bóklegi hlutinn verður haldinn þriðjudaginn 13. nóvember kl. 13:30 til 16:45 og

verklegi hlutinn miðvikudaginn 28. desember kl. 13:30 til 17:00.

Námskeiðsgjald er 23.000 kr og er hráefnisgjald og hressing innifalin

Markmiðin

Meginmarkmiðið með námskeiðinu er að bjóða upp á faglega fræðslu um fæðuofnæmi, alvarleika þess og hvernig tryggja megi góða og holla næringu. Það getur verið flókið að tryggja öruggt fæði og umhverfi fyrir einstakling með fæðuofnæmi. Ljóst er að næringarefni geta orðið af skornum skammti þegar fæðuofnæmi er til staðar og felst fræðslan m.a. í því að fara yfir hvaða fæðutegundir geta komið í staðinn fyrir mjöl, korn, mjólk, egg, fisk, hnetur o.fl. til að fullnægja orku- og næringarlegum þörfum og skapa fjölbreytni í fæðu barna og fullorðinna. Verklegi hlutinn felur í sér eldun og bakstur ýmissa rétta og útfærsla uppskrifta á mismunandi máta eftir því hvaða ofnæmi er um að ræða.

Markhópur

Matreiðslumenn í eldhúsum, matráðir í eldhúsum í leik- og grunnskólum, heimilisfræðikennarar, starfsmenn, kennarar og stjórnendur í skólum, foreldrar og forráðamenn barna og ungmenna með fæðuofnæmi, starfsfólk veitingastaða og hótela, fólk með fæðuofnæmi og aðrir sem áhuga hafa á málefninu.

Bóklegt 2 ½ - 3 klst með stuttu kaffihléi.

*Tryggjum næga orku og góða næringu með hollum, góðum og öruggum mat.

Fríða Rún Þórðardóttir                                 

Er hægt að tryggja öryggi þeirra sem eru með fæðuofnæmi? Hver er okkar réttur?

Selma Árnadóttir

Verklegt 3 ½ - 4 klst

*Eldum góðan og næringarríkan mat fyrir alla, líka þá sem eru með fæðuofnæmi og óþol.Umræður og smakk

Guðný Jónsdóttir 

Kennarar

Fríða Rún Þórðardóttir, næringarfræðingur og næringarráðgjafi Eldhúsi Landspítala, formaður AO.

Guðný Jónsdóttir, Næringarrekstrarfræðingur og kennari matartæknabraut MK 

Selma Árnadóttir, varaformaður AO, ofnæmisráðgjafi og móðir ofnæmisbarns.

Annað

Sýndar verða ýmsar sérfæðisvörur auk þess sem matreiðslubókin Kræsingar verða til sölu.

Skráning

Skráning fer fram hér  (https://goo.gl/forms/iHy9kVGszqBJvh512)  eða með því að senda póst á  ao@ao.is með upplýsingum um: 

* fullt nafn

* kennitölu 

* starfsstöð og 

* Greiðandi (nafn, kennitala og netfang)

Skráning og verð

Námskeiðsgjald er 23.000 kr og er hráefnisgjald og hressing innifalin.

Greiða þarf 8.000 kr. staðfestingargjald við skráningu fyrir 8/11-18:

Bankareikningur: 0113-05-570194

Kennitala:               590474-0109

Senda kvittun á:       ao@ao.is

Vinsamlega greiðið aðeins eitt gjald í hverri færslu þannig að hægt sé að sjá fyrir hvern er verið að greiða eða sendið póst á    ao@ao.is og tilgreinið nöfn þess sem greitt er fyrir.

Skráningarfrestur er til og með 8/11 2018

Námskeið 29. nóvember og 6. desember í Kópavogi

HVERNIG Á AÐ MATREIÐA OFNÆMISFÆÐI  Á ÖRUGGAN HÁTT?

Astma- og ofnæmisfélag Íslands (AO) heldur sitt vinsæla „námskeið um eldun ofnæmisfæðis“ dagana 29. nóvember og 6. desember í Menntaskólanum í Kópavogi.

Bóklegi hlutinn verður haldinn fimmtudaginn 29. nóvember kl. 16:30 til 19:30 og

verklegi hlutinn fimmtudaginn 6. desember kl. 16:30 til 20.30.

Námskeiðsgjald er 17.000 kr og er hráefnisgjald og hressing innifalin

Markmiðin

Meginmarkmiðið með námskeiðinu er að bjóða upp á faglega fræðslu um fæðuofnæmi, alvarleika þess og hvernig tryggja megi góða og holla næringu. Það getur verið flókið að tryggja öruggt fæði og umhverfi fyrir einstakling með fæðuofnæmi. Ljóst er að næringarefni geta orðið af skornum skammti þegar fæðuofnæmi er til staðar og felst fræðslan m.a. í því að fara yfir hvaða fæðutegundir geta komið í staðinn fyrir mjöl, korn, mjólk, egg, fisk, hnetur o.fl. til að fullnægja orku- og næringarlegum þörfum og skapa fjölbreytni í fæðu barna og fullorðinna. Verklegi hlutinn felur í sér eldun og bakstur ýmissa rétta og útfærsla uppskrifta á mismunandi máta eftir því hvaða ofnæmi er um að ræða.

Markhópur

Matreiðslumenn í eldhúsum, matráðir í eldhúsum í leik- og grunnskólum, heimilisfræðikennarar, starfsmenn, kennarar og stjórnendur í skólum, foreldrar og forráðamenn barna og ungmenna með fæðuofnæmi, starfsfólk veitingastaða og hótela, fólk með fæðuofnæmi og aðrir sem áhuga hafa á málefninu.

Bóklegt 2 ½ - 3 klst með stuttu kaffihléi.

*Tryggjum næga orku og góða næringu með hollum, góðum og öruggum mat.

Fríða Rún Þórðardóttir                                 

Er hægt að tryggja öryggi þeirra sem eru með fæðuofnæmi? Hver er okkar réttur?

Selma Árnadóttir

Verklegt 3 ½ - 4 klst

*Eldum góðan og næringarríkan mat fyrir alla, líka þá sem eru með fæðuofnæmi og óþol.Umræður og smakk

Guðný Jónsdóttir 

Kennarar

Fríða Rún Þórðardóttir, næringarfræðingur og næringarráðgjafi Eldhúsi Landspítala, formaður AO.

Guðný Jónsdóttir, Næringarrekstrarfræðingur og kennari matartæknabraut MK 

Selma Árnadóttir, varaformaður AO, ofnæmisráðgjafi og móðir ofnæmisbarns.

Annað

Sýndar verða ýmsar sérfæðisvörur auk þess sem matreiðslubókin Kræsingar verða til sölu.

Skráning

Skráning fer fram hér  (https://goo.gl/forms/hVrD5ikSHykYc74U2)  eða með því að senda póst á  ao@ao.is með upplýsingum um: 

* fullt nafn

* kennitölu 

* starfsstöð og 

* Greiðandi (nafn, kennitala og netfang)

Skráning og verð

Námskeiðsgjald er 17.000 kr og er hráefnisgjald og hressing innifalin.

Greiða þarf 5.000 kr. staðfestingargjald við skráningu fyrir 26/11-18:

Bankareikningur: 0113-05-570194

Kennitala:               590474-0109

Senda kvittun á:       ao@ao.is

Vinsamlega greiðið aðeins eitt gjald í hverri færslu þannig að hægt sé að sjá fyrir hvern er verið að greiða eða sendið póst á    ao@ao.is og tilgreinið nöfn þess sem greitt er fyrir.

Skráningarfrestur er til og með 26.11.2018

Nánari upplýsingar veitir:

Fríða Rún Þórðardóttir,

Formaður AO

frida@heilsutorg.is

Sími 898-8798