Fara í efni

Mt. Esja Ultra - Esja ofurhlaup

Mt. Esja Ultra er alvöru fjallahlaup sem haldið verður í annað skiptið 22. júní 2013. Það er mikið lagt í umgjörð mótsins til að tryggja að hlaupurum líði vel og nái sínum markmiðum.
Esja Ultra hlaup 2012
Esja Ultra hlaup 2012
 

Mt. Esja Ultra er alvöru fjallahlaup sem haldið verður í annað skiptið 22. júní 2013. Það er mikið lagt í umgjörð mótsins til að tryggja að hlaupurum líði vel og nái sínum markmiðum.

Vegalengdir í boði

  • I Einn hringur: Vegalengd 7 km, hækkun 600m - 2.500 kr
  • II Tveir hringir: Vegalengd 14 km, hækkun 1200m - 2.500 kr
  • V Fimm hringir: Vegalengd 35 km, hækkun 3000m - 5.000 kr
  • Xtreme 10 hringir: Vegalengd 70 km, hækkun 6000m - 10.000 kr

Vegleg verðlaun verða veitt fyrstu þremur körlum og konum í ölllum vegalengdum.

Staðsetning
Hlaupið verður ræst frá Esjustofu á mismunandi tímum (sjá rástíma hér að neðan). Keppendur skulu mæta tímalega og þeir sem keppa í V og X þurfa að skrá sig sérstaklega hjá hlaupastjóra.

Rástímar

  • Kl. 5:00 fyrir Xtreme
  • Kl. 10:00 fyrir V ferðir
  • Kl. 13:00 fyrir 2 ferðir
  • Kl. 15:00 fyrir 1 ferð

Skráning
Skráning fer fram hér á hlaup.is. Skráningartímabil eru eftirfarandi:

  • Til 24:00 þann 18.6 fyrir 5 og 10 ferðir
  • Til 20:00 þann 21.6 fyrir 1 og 2 ferðir

Hægt verður að skrá sig á staðnum en þá er 500 kr. hærra verð í styttri vegalengdir (1 og 2 ferðir) og 2.000 kr hærra verð fyrir lengri (5 og 10 ferðir)

Innifalið í skráningargjaldi

  • Verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í öllum vegalengdum, í karla og kvennaflokki.
  • Verðlaunapeningur fyrir alla þá sem klára innan tímamarka.
  • Sérstök verðlaun fyrir þá sem klára Mt.Esja Ultra X innan tímamarka.
  • Sérstök verðlaun fyrir þá sem klára Mt.Esja Ultra V innan 6 klst.
  • Tímataka og númer
  • Vatn, íþróttadrykkir og matur á drykkjarstöð
  • Heit súpa og brauð fyrir keppendur sem hlaupa 5 og 10 hringi

Bolir
Í skráningarferlinu verður hægt er að kaupa boli í kvenna og karlasniði, s-m-l-xl. Verð á bolunum er 3.990 kr.

Afhending keppnisgagna
Afhending keppnisgagna verður 21. júní í TRÍ Suðurlandsbraut 22.

Nánari upplýsingar
Vefsíða hlaupsins: http://www.mtesjaultra.is

Kort af hlaupaleiðinni:

Mt.-Esja-Ultra-Trail-Kort 

Þversnið af hlaupaleiðinni:

 Mt.-Esja-Ultra-Trail-Profil

REGLUR OG ÚTBÚNAÐUR
Verið góð og þakklát við alla sjálfboðaliða sem á vegi ykkar verða

Keppnisstjóri mælir sterklega með því að hver keppandi hafi eftirfarandi útbúnað til taks (skyldubúnaður fyrir keppendur í 5 og 10 hringjum):

  • Plastmál til að sækja vatn í læk og á drykkjarstöð
  • Álteppi
  • Farsíma
  • Nægilegt magn af næringu og vökva (0,5-1,0 L) fyrir hvern hring
  • Teygjubindi
  • Vatnsheldan jakka úr öndunarefni
  • Húfu og hanska

Mælt er með að hafa meðferðis:

  • Göngustafi
  • Drykkjarbelti eða vatnspoka
  • Súrefnissokka
  • Derhúfu
  • Sólgleraugu
  • Sólarvörn
  • Núningsáburð og blöðruplástra

Heimilt verður að geyma aukabúnað  á sérstöku svæði við Esjustofu. Keppendur mega fá aðstoð frá einum utanaðkomandi aðila á svæðinu. Það er mikilvægt að keppendur skipuleggi næringu, útbúnað, klæðnað og aðstoð vel fyrir keppni.

Hlauparar þurfa að hafa meðferðis eigin næringu sem dugar út allt hlaupið.

REGLUR

Keppendur skuldbinda sig til að:

  • Stunda viðeigandi þjálfun til að ljúka keppni innan tímamarka.
  • Stunda heiðarlega keppni og fylgja settri leið skipuleggjenda.
  • Bera virðingu fyrir náttúrunni og henda engu rusli á leiðinni nema við Esjustofu.
  • Klæða sig eftir veðri og veðurspá.
  • Hafa með sér nægja næringu og vökva til að klára keppni.
  • Virða reglur um utanaðkomandi aðstoð en aðeins einn einstaklingur má aðstoða hvern keppanda hverju sinni með búnað og næringu á sérstöku svæði við Esjustofu. Öll önnur utanaðkomandi aðstoð er bönnuð nema í neyð.
  • Sýna öðrum keppendum og göngufólki tillitsemi á leiðinni.
  • Hafa keppnisnúmer sýnilegt allan tímann .
  • Skrá sig hjá starfsmanni við Stein (checkpoint) og Esjustofu í hverjum hring.
  • Keppendum ber að aðstoða aðra keppendur í neyð þar til önnur viðeigandi hjálp berst
  • Keppnisstjóri ber ekki ábyrgð á hlaupurum vegna utanaðkomandi áhrifa eins og veðurs og náttúruhamfara
  • Keppendur eru á eigin ábyrgð í keppninni en eru hvattir til að leita viðeigandi aðstoðar ef um slys eða veikindi er að ræða.
  • Keppnisstjóri getur vísað öllum frá keppni sem fylgja ekki settum reglum
  • Keppnisstjóra er heimilt að aflýsa eða stoppa hlaupið vegna utanaðkomandi aðstæðna